08.06.2012
Lífland býður upp á steinbita í fjós sem framleiddir eru á Íslandi. Bitarnir hafa verið í þróun undanfarið
ár og prófaðir af Nýsköpunarmiðstöð Íslands og standast þeir allar mælingar um brotþol og styrk á steypu.
01.06.2012
Þann 1. Júní flutti skrifstofa Líflands í nýtt og glæsilegt skrifstofuhúsnæði á
þriðju hæð í Brúarvogi 1 – 3 í Reykjavík. Þar með hefur Lífland flutt alla sína starfsemi úr Korngörðum
þar sem fyrirtækið hefur rekið sína starfsemi í áraraðir.
29.05.2012
Fákur og Lífland brydda upp á þeirri nýung að bjóða sérmerktan fatnað fyrir
Hestamannafélagið Fák sem að meðal annars verður Landsmótsfatnaður Fáksmanna. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi
í línunni og fá Fáksmenn afslátt af fatnaðinum auk þess sem að merkingin fylgir með. Fatnaðurinn er fyrirfram merktur svo að ekki
þarf að bíða eftir merkingu eftir að flík er valin.
07.05.2012
Lífland hefur á síðustu misserum sótt í sig
veðrið í sölu fatnaðar fyrir keppnisfólk í hestamennsku. Bjóðum við nú upp á nokkrar tegundir af hvítum og svörtum stígvélareiðbuxum, með og án stamrar bótar,
frá Mountain Horse, Impact og Sonnenreiter.
26.04.2012
Gæludýraklúbbur Líflands bíður nú upp á fastann 10% afslátt af Arion Friends fóðrinu eins gilt hefur fyrir Arion Premium
fóðrið.
Í tilefni af þessu verður 5% aukaafsláttur af báðum fóðurtegundum í maí fyrir félaga í
gæludýraklúbbi Líflands.Skráning
hér
24.04.2012
Það hefur vorað vel víðast hvar á landinu og bændur og þéttbýlisbúar eru byrjaðir á vorverkunum. Eitt af þeim er
að huga að girðingum. Lífland býður mikið úrval af girðingarefni og hliðgrindum hvort heldur er fyrir bændur, sumarbústaðaeigendur
eða þéttbýlisbúa. Við sendum að sjálfsögðu hvert á land sem er. Nýjasta verðlistann má nálgast
hér.Verðlisti
16.04.2012
Oddný Tracey á hundinn Chopper sem er Arion Premium hundurinn 2012
16.04.2012
Æskulýðsdeild
hestamannafélagsins Fáks hélt sitt árlega æskulýðsmót í samstarfi við LÍFLAND í gær. Um 100 skráningar voru
á mótið sem byrjaði snemma í gærmorgun og lauk um kvöldmatarleytið.
Líflandsmótið er löngu
búið að festa sig í sessi sem eitt vinsælasta hestaíþróttamót ársins, þar sem reyndir og óreyndir knapar leiða saman
hesta sína í 4-gangi, tölti og 5-gangi.
Frá vef Landsamband
hestamanna