01.11.2012
Hverjir
verða knapar ársins? Nú styttist í uppskeruhátíð en þá fer jafnframt fram uppgjör ársins, og það fólk sem
hefur staðið framarlega á sínu sviði er verðlaunað. Það fylgir því jafnframt töluverð spenna og sitt sýnist
hverjum.
frétt frá isibless.is
25.10.2012
Tveir hópar franskra vísindamanna hafa hafnað rannsókn sem vakti mikla athygli, en jafnframt gagnrýni, þar sem fylgni var sögð milli neyslu á
erfðabreyttum maís og æxlamyndunar hjá rottum. Vísindamennirnir segja þó að tilefni sé til ítarlegri rannsókna á
málinu.
Sjá nánar á vef mbl.is
17.10.2012
Leovet hestaumhirðuvörurnar voru að vinna verðlaun í neytendakönnun Cavallo tímaritsins sem að er mest selda hestatímarit í
Þýskalandi.
07.10.2012
Starfsmenn Líflands eru nú í óða önn að taka heysýni hjá bændum,
sem greind eru hjá rannsóknarstofunni BLGG í Hollandi.
Niðurstöðurnar eru mjög viðamiklar og sýna m.a. stöðu
steinefna og snefilefna í heyjum.
Þau heysýni sem þegar hafa verið greind, sýna verulegt ójafnvægi
í steinefnabúskap heyja og er t.d. Selenskortur áberandi eins og undanfarin ár.
Bændur þurfa því að gæta vel að bætiefnagjöf.
27.09.2012
Lífland tilkynnir hér með um hækkun á kjarnfóðri. Hækkunin er á bilinu 4-9%, mismunandi eftir tegundum.
12.09.2012
Lagersala Líflands er í nýju lagerhúsnæði að Brúarvogi 1 – 3. Opið verður frá 12:00 til 18:00 virka daga en frá
12:00 til 16:00 á laugardögum (lokað á sunnudögum).
Tilefni lagersölunnar er flutningur skrifstofu og lagers frá Korngörðum 5 í Brúarvog 1 – 3. Í boði er fatnaður, reiðtygi, skeifur,
járningaáhöld, gæludýravörur, rafgirðingaefni og margt fleira á verulega góðu verði. Nú er um að gera að nota
tækifærið og kaupa vörur á verðum sem bjóðast ekki á hverjum degi.
Hlökkum til að sjá þig, starfsfólk Líflands.
20.08.2012
Guðný Benediktsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Líflands/Kornax frá
og með 1. september næstkomandi. Guðný lauk prófi í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1989 með
áherslu á stjórnun og rekstur og MBA frá Colorado State University árið 1991. Hún hefur fjölbreytta stjórnunarreynslu að baki
úr ólíkum greinum atvinnulífsins. Síðast gegndi hún starfi forstöðumanns gæða- og öryggismála hjá
Sjóvá.
20.08.2012
Landbúnaðarsýning og bændahátíð var haldin laugardaginn 25 ágúst Í Reiðhöllinni,
Svaðastöðum á Sauðárkróki.
13.08.2012
Girðir framleiðir bitana og
við hjá Líflandi, með okkar tengsl
við bændur, sjáum um sölumálin,“
segir Gunnar Már.
01.08.2012
Lífland tekur þátt í Landbúnaðarsýningu og handverkshátíð við Hrafnagil í Eyjafirði dagana 10. til 13.
ágúst næstkomandi. Við bjóðum Eyfirðinga og aðra gesti velkomna á kynningarbás okkar til skrafs og ráðagerða varðandi
vörur og þjónustu Líflands og vonumst til að sjá sem flesta.