Fara í efni

Afmæliskaka

  • 100 g sykur
  • 100 g smjörlíki
  • 2 egg
  • 100 g Kornax hveiti
  • 1 tsk lyftiduft

Hræra saman smjörlíki og sykri þar til áferð verður kremuð.  Næst bætt út í eggjum, einu eggi í einu. Skafa vel upp úr botninum og bæta að lokum rest út í og vinna vel saman.

Bakað við ca.200°C í einu formi ca.22cm þar sem kantarnir verða hærri.

Karmellubráð ofaná

  • 2 dl rjómi
  • 100 g sykur
  • 2 msk síróp
  • 1 tsk vanilludropar
  • 30 g sykur

Soðið saman í potti þar til hræran er seigfljótandi.