Fara í efni

Kanillengja með marsípani og ristuðum heslihnetum

Þessi uppskrift kemur frá Valgerði Gröndal - vallagrondal.is

Kanillengjur eru bakkelsi sem við fjölskyldan höfum oft átt erfitt með að standast þegar við förum í bakarí. Það er bara eitthvað þessa samsetningu, mjúkt deigið, kanill, stökkar hnetur og glassúr, sem er bara stórkostlegt. Það er hins vegar lítið mál að baka svona lengjur heima og eftir nokkrar tilraunir þá er ég komin með þá útgáfu sem skákar öllum sem ég hef smakkað. Hún er alveg risastór og nær horn í horn á bökunarplötu en það er einmitt það sem gerir hana svo góða, er svo djúsí! Þannig er þetta líka smávegis eins og kaka og skemmtilegt að bera hana fram í afmælum og öðrum veislum.

Innihald:

  • 250 ml. nýmjólk, volg
  • 25g pressuger (eða 2 ½ tsk. þurrger)
  • 75g sykur
  • 1 ½ tsk. malaðar kardimommur
  • 1 tsk. salt
  • 75g smjör, mjúkt
  • 475g hveiti + auka ef þarf, ég nota rauða Kornax
  • 1 egg til að pensla yfir
  • Hvítur perlusykur (má sleppa ef þið finnið hann ekki)
  • 50g ristaðar heslihnetur, saxaðar

 

Fylling:

  • mjúkt smjör
  • 75g púðursykur
  • 40g sykur
  • 1 msk. kartöflumjöl
  • 2 msk. kanill
  • 40g kalt marsípan, rifið

 

Sykursíróp

  • 50g vatn
  • 50g sykur

 

Glassúr

  • 100g flórsykur
  • Nýmjólk, magn eftir smekk

 

Aðferð:

  1. Byrjið á því að velgja mjólkina upp í 38°C. og setjið hana í hrærivélaskál. Festið krókinn á vélina.
  2. Setjið gerið út í mjólkina í bútum, eða stráið yfir ef þið notið þurrger. Bíðið í 5 mínútur.
  3. Hellið sykrinum, kardimommum, salti og rúmlega helmingnum af hveitinu saman við og byrjið að hræra. Þegar deigið er orðið nokkuð samlagað setjið þá smjörið út í í nokkrum hlutum. Haldið áfram að hnoða.
  4. Setjið restina af hveitinu saman við og látið vélina vinna þar til deigið er orðið samlagað.
  5. Deigið á að vera frekar blautt en samt ekki klístrað. Ef ykkur finnst það of blautt bætið þá 1 msk af hveiti í einu þar til það nær réttu áferðinni en það á að klístrast aðeins við botninn á skálinni.
  6. Færið deigið á borðplötu og hnoðið örlítið og mótið í kúlu. Spreyið skál að innan með olíuspreyi, setjið deigið í skálina og hyljið með plastfilmu. Hefið á borði í 60 mínútur.
  7. Á meðan er gott að græja fyllinguna: Blandið öllu nema marsípaninu í skál. Rífið marsípanið á rifjárni yfir skálina og hrærið öllu saman.
  8. Útbúið þá sykursírópið með því að setja sykur og vatn í skál og hita í örbylgjunni þar til sykurinn er uppleystur. Það er auðvitað einnig hægt að sjóða þetta saman í litlum potti. Kælið.
  9. Þegar deigið hefur hefast er gott að setja bökunarpappír á plötu og hafa hana við höndina. Setjið deigið á borðplötu og fletjið út í ferning, ca. 35x45 cm.
  10. Smyrjið fyllingunni á útflatt deigið og rúllið því síðan upp á stuttu hliðinni, öfugt við það sem þið mynduð gera við kanilsnúða.
  11. Færið deigið á bökunarplötuna og klippið í deigið með ca. 3 cm. millibili og snúið bútunum sitt á hvað.
  12. Setjið plastfilmu yfir lengjuna. Hitið ofn í 40°C og úðið að innan með vatni.
  13. Setjið kanillengjuna inn í ofninn og hefið í 25-30 mín.
  14. Takið lengjuna út og hitið ofninn í 190°C blástur.
  15. Penslið með sundurslegnu eggi og stráið söxuðum hnetum og perlusykri yfir.
  16. Bakið í ca. 25 mín. Ef ykkur finnst kanillengjan dökkna um of, leggið þá álpappír yfir síðustu mínúturnar.
  17. Takið lengjuna út úr ofninum og penslið strax með sykursírópinu. Látið hana síðan kólna alveg.
  18. Útbúið glassúrinn með því að setja flórsykur í skál og setja örlítið af mjólk saman við og hræra. Betra er að hafa glassúrinn frekar þykkan.