Fara í efni

Hveitiklíðbollur

Hveitiklíðbollur

 5 dl heitt vatn

5 dl mjólk

12 tsk þurrger eða

120 gr pressuger

5 tsk púðusykur

5 msk smjörlíki

2 dl Kornax hveitiklíð

12 dl Kornax heilhveiti

3 dl Kornax hveiti

5 tsk salt

Blandið saman vatni og mjólk (u.þ.b 37°C heitu) og hellið yfir gerið.  Hrærið linu smjörlíki, sykri, salti og helming af mjölinu saman við og hnoðið þar til það er seigt og gljáandi.  Stráið dálitlu af mjölinu yfir deigið og það látið lyfta sér í u.þ.b. 30 mín. (ef deigið er lint lyfta bollurnar sér betur)  Hnoðið það sem eftir er af mjölinu upp í deigið og mótið bollur sett á smurða plötu og látið lyfta sér 15–20 mín. 

Bakið í miðjum ofni við 225°C í 10–15 mín.