23.12.2011
Óskum samstarfsaðilum okkar
gleðilegra jóla og farsældar á nýju
ári. Þökkum fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða.
Starfsfólk Líflands
13.12.2011
Undanfarin ár hefur Lífland boðið
viðskiptavinum sínum upp á ýmsa
viðburði fyrir jólin.Fagfólk innan hestamennskunnar
kemur í verslanir Líflands í Reykjavík
og á Akureyri og er viðskiptavinum
innan handar með val á búnaði.Hvetjum við viðskiptavini okkar
til að koma og leita í reynslubanka
þessa fagfólks.
viðburðir:
12.12.2011
Ó
já, jólastemningin læddi sér inn um bréfalúguna á skrifstofu Landsmóts í morgun með jólatónlist, kertaljósi og
piparkökum í bunkum.
Við viljum því
endilega minna ykkur á jólaleikinn okkar sem fór í gang um leið og miðasalan hófst. Veglegir vinningar bíða í pottinum en allir seldir
miðar fram að jólum fara sjálfkrafa í pottinn. Athugið að á forsöluverði kostar vikupassi aðeins 10.000 krónur með LH/BÍ
afslætti og N1 korts afslætti, en fullt verð er 18.000 krónur.
08.11.2011
Lífland tilkynnir hér með um lækkun á kjarnfóðri. Lækkunin nemur allt að 5%, mismunandi eftir tegundum.
Ástæða verðbreytingarinnar er lækkun á heimsmarkaðsverði hráefna til fóðurgerðar. Þrátt fyrir lækkun á
mörkuðum undanfarið eru miklar blikur á lofti á hrávörumörkuðum og enn óljóst hvert hráefnaverð stefnir.
Allar nánari upplýsingar veitir undirrituð í síma 540-1100.
Virðingarfyllst,
F.h. Líflands
Bergþóra Þorkelsdóttir framkvæmdastjóri
02.11.2011
Bændaþjónustan, Efstubraut 1, Blönduósi verður með opið hús (vörukynningu) laugardaginn 12.nóvember Ráðgjafar
frá Líflandi og Gæðavörum verða á staðnum.
Ýmis tilboð í tilefni dagsins.
Léttar veitingar í boði
Allir hjartanlega velkomnir.
Eymundur og Hái
25.10.2011
Lífland hélt fræðslufundi fyrir kúabændur á fimm stöðum á landinu í síðustu viku.
Þetta er fimmta árið í röð sem Lífland heldur fræðslufundi af þessu tagi. Fundirnir eru haldnir í samstarfi við
hollenska fyrirtækið Trouw Nutriton.
Dagskrárefni að þessu sinni var „Umbreyting fóðurpróteins í mjólkurprótein – hvaða áhrif hafa gæði
gróffóðursins?“. Auk þess var fjallað um niðurstöður heysýna, sem tekin hafa verið í ár af Líflandi og greind af
rannsóknarstofunni BLGG í Hollandi.
12.10.2011
Fundir haldnir
Þriðjudaginn
18. október
Hótel KEA, Akureyri kl.11:00
Miðvikudaginn
19. október
Í sal Samstöðu, Blönduósi kl.13:00
Hótel Hamar, Borgarnesi kl.20:10
Fimmtudaginn
20. október
Hótel Flúðir kl.11:00
Hótel Hvolsvöllur kl.20:00
31.08.2011
Lífland tilkynnir hér með um lækkun á kjarnfóðri. Lækkunin nemur allt að 4%, mismunandi eftir tegundum.
Ástæða verðbreytingarinnar er lækkun á heimsmarkaðsverði hráefna til fóðurgerðar vegna nýrrar uppskeru. Þrátt fyrir
lækkun á mörkuðum undanfarið eru miklar blikur á lofti á hrávörumörkuðum og enn óljóst hvert hráefnaverð stefnir
á næstu vikum/mánuðum.
Lækkunin tók í gildi fimmtudaginn 1. september 2011.
Virðingarfyllst,
F.h. Líflands
Bergþóra Þorkelsdóttir
framkvæmdastjóri