Karfan er tóm.
Himneskar möndlu-croissant smákökur
Þessi uppskrift kemur frá Valgerði Gröndal - vallagrondal.is
Ef þið eruð jafn hrifin af möndlu croissant og ég, mæli ég með því að þið staldrið aðeins við! Þessar möndlu-croissant smákökur eru fullkomin blanda af stökku og mjúku, sætu og örlítið söltu, gylltar og stökkar að utan en dásamlega mjúkar og léttar að innan. Af þeim er ríkulegt möndlubragð sem minnir á marsípan en mér finnst allt með möndlum ómissandi á aðventunni, hvort sem er í konfekt eða smákökur. Nóg af smjöri þarna líka og svo auðvitað sígilda rauða Kornax hveitið líkt og ég nota í öllum mínum kökubakstri.
Ég vara ykkur samt við, þær eru það stórkostlegar að það jaðrar við að þær séu ávanabindandi. Ég lofa því að það er ekki séns að fá sér bara eina!
Innihald:
Frangipane möndlufylling:
- 65g brætt smjör
- 100g sykur
- 2 litlar eggjarauður, ég nota egg frá Nesbú
- 3/4 tsk. vanilludropar
- 3/4 tsk. möndludropar
- 60g malaðar möndlur eða möndlumjöl
- 60g hveiti
- ¼ tsk. salt
Möndlukökurnar:
- 170g mjúkt smjör
- 165g púðursykur
- 50g sykur
- 2 eggjarauður
- 1 msk. vanilludropar
- 2 tsk. möndludropar
- 220g Kornax hveiti, rautt
- 55g malaðar möndlur eða möndlumjöl
- ½ tsk. lyftiduft
- ½ tsk. matarsódi
- ½ tsk. salt
- 80g möndluflögur
- Flórsykur til að dusta yfir
Aðferð:
- Byrjið á því að útbúa möndlufyllinguna. Setjið brætt smjör og eggjarauður saman í skál og hrærið aðeins í.
- Bætið við vanillu- og möndludropum og hrærið saman við.
- Setjið þá malaðar möndlur og hveiti saman við og hrærið þar til blandan er orðin samfelld. Setjið til hliðar.
- Útbúið deigið fyrir smákökurnar:
- Setjið mjúkt smjör í skál ásamt púðursykri og sykri. Þeytið í 2-3 mínútur og skafið nokkrum sinnum niður á milli.
- Bætið þá við eggjarauðum vanillu- og möndludropum og þeytið áfram þar til blandan verður létt og ljós.
- Hellið þá hveiti, möluðum möndlum, lyftidufti, matarsóda og salti út í. Hrærið í nokkrar sekúndur með þeytaranum, stoppið þá og klárið að blanda deigið saman með sleikju.
- Hitið ofninn í 175°C með blæstri
- Setjið bökunarpappír á 2 plötur.
- Mótið kúlur úr deiginu og raðið 12 stk. á hverja plötu.
- Búið til holu í hverja kúlu með einhverju áhaldi sem þið hafið við hendina, gott er að dýfa því inn á milli í hveiti svo það klístrist ekki við kökurnar.
- Takið því næst möndlufyllinguna og rúllið út kúlur og setjið í hverja köku. Þrýstið aðeins á þær þegar búið er að fylla allar kökurnar.
- Stráið ríflega af möndluflögum yfir og bakið í 11-12 mín.
- Takið þá kökurnar út og leyfið þeim að kólna áður en flórsykri er dustað yfir.
