Fara í efni

Fréttir

Heimsmeistaramót 2011

  Landslið Íslands í hestaíþróttum hefur verið valið og var kynnt í verslun Líflands þriðjudaginn 19 júlí. Heimsmeistaramót íslenska hestsins verður haldið í Austurríki vikuna 1. til 7. ágúst næstkomandi og teflir Ísland fram afar sterku liði á mótinu. Verið velkomin í verslun okkar að Lynghálsi 3 í dag til að kynna ykkur liðið og umgjörð þess.   Starfsfólk Líflands.

Íslandsmót á Selfossi

Íslandsmót í hestaíþróttum hefst á Brávöllum á Selfossi, fimmtudaginn 14. Júlí. Lífland er einn helsti stuðningsaðili Íslandsmótsins. Án efa verður þetta skemmtilegt mót með glæsilegum hestakosti. Lífland óskar keppendum góðs gengis og við vonum að veðrið leiki við Selfyssinga á meðan á mótinu stendur.

Landsmót Hestamanna

Í Skagafirði  26 júní -3 júlí 2011 Lífland var með verslun á Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum í Skagafirði í liðinni viku. Okkur langar að þakka þeim fjölmörgu sem komu í sölutjaldið til okkar til að versla og kasta á okkur kveðju. Nú þegar er hafinn undirbúningur fyrir þátttöku Líflands í Landsmóti í Reykjavík 2012 og vonumst við til að sjá sem flest ykkar aftur þar. Í millitíðinni tökum við vel á móti ykkur í verslunum okkar í Reykjavík og á Akureyri.   Starfsfólk Líflands  

Ný fóðurverksmiðja Líflands á Grundartanga

Ný fóðurverksmiðja Líflands eykur samkeppnishæfni íslensks landbúnaðar  þann 15 Óktóber 2010 var ný fóðurverksmiðja Líflands á Grundartanga í Hvalfirði tekin formlega í notkun. Nýja verksmiðjan markar tímamót varðandi gæði og öryggi fóðurs, sóttvarnir og rekjanleika afurða. Alger aðskilnaður er milli hráefna og hitameðhöndlaðrar vöru sem er forsenda öflugra sóttvarna gegn örverum. Fjárfesting í verksmiðjunni nemur um 1,6 milljörðum króna. Framkvæmdir við verksmiðjuna hófust í júlí 2009 og alls störfuðu á annað hundrað manns við byggingu hennar. Framleiðslugeta verksmiðjunnar verður rúmlega 60 þúsund tonn á ári.