12.10.2011
Fundir haldnir
Þriðjudaginn
18. október
Hótel KEA, Akureyri kl.11:00
Miðvikudaginn
19. október
Í sal Samstöðu, Blönduósi kl.13:00
Hótel Hamar, Borgarnesi kl.20:10
Fimmtudaginn
20. október
Hótel Flúðir kl.11:00
Hótel Hvolsvöllur kl.20:00
31.08.2011
Lífland tilkynnir hér með um lækkun á kjarnfóðri. Lækkunin nemur allt að 4%, mismunandi eftir tegundum.
Ástæða verðbreytingarinnar er lækkun á heimsmarkaðsverði hráefna til fóðurgerðar vegna nýrrar uppskeru. Þrátt fyrir
lækkun á mörkuðum undanfarið eru miklar blikur á lofti á hrávörumörkuðum og enn óljóst hvert hráefnaverð stefnir
á næstu vikum/mánuðum.
Lækkunin tók í gildi fimmtudaginn 1. september 2011.
Virðingarfyllst,
F.h. Líflands
Bergþóra Þorkelsdóttir
framkvæmdastjóri
22.08.2011
20% afsláttur á öllu rafgirðingaefni til 15.september. Innifalið í tilboðinu eru allir rafgirðingaspennar og allir
íhlutir s.s. hliðhandföng, randbeitarborðar og –þræðir, randbeitarstaurar, boltatengi, álstrekkjarar, einangrar o.mfl.
Nú er tilvalið að nýta sér þennan frábæra afslátt.
Undanþegið afslætti eru holta- og mýrarstaurar, tréstaurar og
þanvír.
16.08.2011
Landbúnaðarsýning og bændahátíð verður haldin laugardaginn 20 ágúst Í Reiðhöllinni, Svaðastöðum á
Sauðárkróki.
Þar verður Lífland með myndarlegan bás og að sjálfssögðu myndarlega starfsmenn til skrafs og ráðagerða með bændum og
öðrum gestum.
Ef þið eigið leið um Skagafjörðinn er um gera að líta við.
Kær kveðja starfsfólk Líflands
09.08.2011
Tilvitnun í vef hestafréttir.is
Íslenska
landsliðið í hestaíþróttum 2011. Mynd: HKG
Maggi Skúla og Hraunar heimsmeistarar í fimmgangi
Magnús Skúlason og Hraunar frá Efri-Rauðalæk eru talandi dæmi hvað það er oft sem það gerist að menn sigra
Aúrslit eftir að hafa þurt að fara í gegnum B úrslitin en það gerðu þeir og sigruðu glæsilega . Árni Björn
Pálsson og Aris frá Akureyri höfnuðu í 3. sæti. Rúna Einarsdóttir Zingsheim og Freyr vom Nordsternhof enduðu í 5.-6.
sæti.
F1 Five Gait - A-Final
09.08.2011
Tilvitnun í vef hestafréttir.is
Íslenska landsliðið í hestaíþróttum 2011. Mynd: HKG
Íslensku keppendurnir hafa staðið sig vel á Heimsmeistaramótinu í Austurríki. Helga Una landaði fyrsta gullinu á Smá frá
Þúfu í 5. vetra flokki hryssna, Erling eða Elli og Rauðhetta frá Kommu sigruðu í flokki 6. vetra hryssna og náðu þar öðru gulli
til Íslands. En í dag náði ungmennið okkar hún Hekla Katharína Kristinsdóttir og Gautrekur frá Torfastöðum gulli, þau voru
hæst af ungmennunum í fjórgangi með einkunnina 7,27. Eyjólfur og Ósk frá Þingnesi eru efst inn í úrslit í T2 og gerðu
sér lítið fyrir og náðu 7. sæti og þar af leiðandi B-úrslitum í fjórgangi. Eyjó er þar með
heimsmeistari í samanlögðum fjórgangsgreinum.
20.07.2011
Íslenska landsliðið í hestaíþróttum 2011. Mynd: HKG
Landslið Íslands í
hestaíþróttum fullskipaðNítján knapar skipa landsliðið í hestaíþróttum sem keppir fyrir
Íslands hönd á heimsmeistaramótinu í Austurríki sem hefst 1. ágúst n.k. Þrír heimsmeistarar frá HM 2009 eiga
keppnisrétt á HM 2011.
Landssamband hestamannafélaga er afar stolt af
liðinu sem hefur á að skipa reyndum og sterkum knöpum og hestum og væntir mikils af því á keppnisvöllunum í St. Radegund í
Austurríki í ágúst
<span style="font-family: Arial;" class="Apple-style-span">&nbsp;</span>Tilvitnun í vef Landsambands
hestamanna
19.07.2011
Landslið Íslands í hestaíþróttum hefur verið valið og var kynnt í verslun Líflands
þriðjudaginn 19 júlí. Heimsmeistaramót íslenska hestsins verður haldið í Austurríki vikuna 1. til 7. ágúst næstkomandi
og teflir Ísland fram afar sterku liði á mótinu. Verið velkomin í verslun okkar að Lynghálsi 3 í dag til að kynna ykkur liðið og
umgjörð þess.
Starfsfólk Líflands.
14.07.2011
Íslandsmót í hestaíþróttum hefst á Brávöllum á Selfossi, fimmtudaginn 14. Júlí.
Lífland er einn helsti stuðningsaðili Íslandsmótsins. Án efa verður þetta skemmtilegt mót með glæsilegum hestakosti. Lífland
óskar keppendum góðs gengis og við vonum að veðrið leiki við Selfyssinga á meðan á mótinu stendur.