05.05.2011
Í Skagafirði
26 júní -3 júlí 2011
Lífland var með verslun á Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum í Skagafirði í liðinni viku. Okkur langar að þakka þeim
fjölmörgu sem komu í sölutjaldið til okkar til að versla og
kasta á okkur kveðju.
Nú þegar er hafinn undirbúningur fyrir þátttöku Líflands í Landsmóti
í Reykjavík 2012 og vonumst við til að sjá sem flest ykkar
aftur þar. Í millitíðinni tökum við vel á móti ykkur í verslunum okkar í Reykjavík og á Akureyri.
Starfsfólk Líflands
 
19.10.2010
Ný fóðurverksmiðja Líflands eykur samkeppnishæfni íslensks landbúnaðar
þann 15 Óktóber 2010 var ný fóðurverksmiðja Líflands á Grundartanga í
Hvalfirði tekin formlega í notkun. Nýja verksmiðjan markar tímamót varðandi gæði og öryggi fóðurs, sóttvarnir og rekjanleika
afurða. Alger aðskilnaður er milli hráefna og hitameðhöndlaðrar vöru sem er forsenda öflugra sóttvarna gegn örverum. Fjárfesting í
verksmiðjunni nemur um 1,6 milljörðum króna. Framkvæmdir við verksmiðjuna hófust í júlí 2009 og alls störfuðu á annað
hundrað manns við byggingu hennar. Framleiðslugeta verksmiðjunnar verður rúmlega 60 þúsund tonn á ári.