Fara í efni

GEA mjaltaþjónar

GEA Dairy Robot R9500

Nýjasta útfærslan af Monobox er Dairy Robot R9500

Dairy Robot R9500 byggir á framúrskarandi tækni. Meðal annars mælir hann frumutölu, lit, leiðni, mjólkurflæði og mjólkurmagn fyrir hvern spena í sérhverjum mjöltum. Þannig má grípa fyrr inn í ef upp koma vandamál og stytta þannig meðhöndlunartíma gripanna.

Kostir GEA R9500 mjaltaþjónsins

  • Rúmgóður inngangur veitir gott aðgengi fyrir kýrnar og auðvelda inn- og útgöngu gripanna.
  • Hátæknimjaltaarmur með þrívíddar innrauðri myndavél tryggir hraðvirka og örugga ásetningu.
  • Einungis ein ásetning fyrir allt mjaltaferlið minnkar streitu hjá kúnum.
  • Nettur og fyrirferðarlítill.
  • Mælir frumutölu í hverjum mjöltum og gefur meðalfrumutölu hvers spena fyrir sig.
  • Skilvirkt vinnuumhverfi þar sem aðgengi fyrir inngrip er gott.
  • Einföld og notendavæn leiðsögn á rauntímaskjá.
  • Tækjadeild Líflands í samstarfi við sérfræðinga GEA veita sólarhrings þjónustu allan ársins hring.      


Fáðu nánari upplýsingar um vörur og þjónustu í síma 540-1100 eða á lifland@lifland.is

Bæklingur um GEA mjaltaþjóna með ítarlegum upplýsingum

 Bakvaktarsími þjónustu: 540-1122