Karfan er tóm.
Insylo þjónusta
InSylo búnaður er tæknilausn sem gefur færi á að fylgjast nákvæmlega með innra ástandi fóðursílós með myndgreiningu, ljósmynd sem tekin er einu sinni á sólarhring, greiningu á magni í sílói, flæði úr því svo og notkun og fóðurnýtingu. Þá greinir tækið hita-og raka í sílóinu. Búnaðurinn vaktar stöðu í sílói og getur spáð fyrir um þörf á áfyllingu. Tækið er nettengt, svo nálgast má upplýsingar í tölvu eða síma.
Þjónustan felur m.a. í sér afhendingu búnaðar, uppsetningu, gagnasamskipti, aðgang að InSylo Cloud, vöktun á virkni búnaðar, þjónustu og ráðgjöf. Lífland er þjónustuaðili viðskiptavinar og allar þjónustubeiðnir skulu berast Líflandi.
Almennir skilmálar fyrir Insylo þjónustu