Fara í efni

Vatnsdeigsbollur sem klikka aldrei

Þessi uppskrift kemur frá Valgerði Gröndal - vallagrondal.is
Það getur verið kúnst að baka vatnsdeigsbollur en ef nokkur mikilvæg atriði eru á hreinu þá get ég ábyrgst að útkoman verði alltaf góð. Margir eiga sínar uppskriftir af vatnsdeigsbollum og hafa reynst vel. Lykillinn að flottum bollum sem falla aldrei liggur í aðferðinni fyrst og fremst. Deigið má ekki vera of lint og það er algjörlega bannað að opna ofninn fyrr en rétt áður en heildarbökunartíminn er liðinn.

Ég stenst sjaldan eitthvað með jarðarberjum svo ég ákvað að fara alla leið í ár og hafa hana jarðarberja út í gegn. Ég fyllti þær með jarðarberjafrómas, jarðarberjasultu og ferskum jarðarberjum. Ég dreifði svo bræddu hvítu súkkulaði yfir og dustaði frostþurrkuðum jarðarberjum yfir súkkulaðið. Algjör jarðarberjabomba!

Innihald:

  • 200g vatn
  • 160g smjör
  • 250g Kornax hveiti í rauðu pokunum
  • ¼ tsk. salt
  • 5-6 stór egg frá Nesbú

 

Aðferð:

  1. Hitið vatn í potti og bætið smjöri saman við. Látið sjóða í smá stund. Lækkið hitann niður í lægsta hita.
  2. Setjið hveiti og salt saman við og hrærið rösklega saman í pottinum þar til deigið verður kekkjalaust.
  3. Kælið deigið með því að setja það í hrærivélaskálina og dreifa því upp á skálarbrúnirnar.
  4. Setjið egg í mælikönnu og pískið saman. Ef eggin eru mjög stór er ekki víst að það þurfi alveg 6 egg svo það er betra að píska þau saman og skilja smá eftir.
  5. Þegar deigið er orðið fingurvolgt má byrja að hræra það með káinu og setja eggin út í í smá skömmtum. Deigið er passlegt þegar það getur runnið af sleikjunni en ekki þannig að það renni út þegar það er sett á plötu.
  6. Hitið ofninn í 190°C blástur. Setjið deigið á plötu klædda bökunarpappír með góðu millibili. Stærðin fer eftir smekk en mér finnst best að nota sprautupoka en einnig er fínt að nota matskeiðar eða jafnvel ísskeið. Setjið plöturnar inn og lækkið hitann í 175°C. Bakið bollurnar í að minnsta kosti 30 mín, 40 mín ef bollurnar eru mjög stórar. Ég fer jafnvel alveg upp í 45 mín þar sem ég vil hafa þær frekar þurrar og þannig eru líka minni líkur á því að þær falli.
  7. Þegar þær eru tilbúnar er gott að stinga gat á þær neðarlega með tannstöngli og kæla þær á grind. Þannig þorna þær betur að innan.
  8. Fyllið með hverju sem hugurinn girnist!

Ef við drögum þetta saman þá eru þetta mikilvægustu atriðin sem þurfa að vera í lagi svo bollurnar heppnist í hvert sinn:

  • Pískið eggin saman í mælikönnu, egg eru misstór og stundum er of mikið að nota alveg 6 egg.
  • Deigið má ekki vera of heitt þegar eggjum er bætt við, annars hætt við að við endum með eggjahræru.
  • Deigið má ekki vera of þunnt en alls ekki of þykkt heldur. Það á að halda forminu þegar það er sett á plötu.
  • Best er að hafa hitann háan strax í upphafi en lækka svo niður í þann hita sem við bökum bollurnar við allan baksturstímann.
  • Bakið bollurnar frekar lengur en styttra og alls ekki opna ofninn fyrr en rétt áður en heildarbaksturstími er liðinn. Það er minni hætta á að þær brenni en að þær falli.
  • Stingið gat á bollurnar með tannstöngli þegar þær koma úr ofninum til að hleypa út röku lofti. Kælið á grind.

 

Fylling:

Jarðarberjafrómas:

  • ½ l. rjómi
  • 1 poki jarðarberjamarengsduft
  • Jarðarberjasulta
  • 100g hvítt súkkulaði
  • Nokkur frostþurrkuð jarðarber mulin