17.11.2020
Lokað í verslun Líflands á Blönduósi mánudaginn 23. nóvember.
Nú standa yfir framkvæmdir í verslun Líflands á Blönduósi sem hafa í för með sér töluverða röskun á þjónustu næstu vikurnar.
Á mánudaginn næstkomandi verður verslunin lokuð en ef þörf er á fóðri eða öðrum nauðsynjavörum er hægt að hafa samband við Sævar verslunarstjóra í síma 843 6117.
Við þökkum fyrir skilninginn og vonumst til þess að framkvæmdum ljúki fljótt og vel, þannig að við getum opnað betri og skemmtilegri verslun hér á Blönduósi fljótlega.
Bestu kveðjur
Starfsfólk Líflands á Blönduósi