15.04.2025
Verslanir Líflands verða lokaðar á skírdag, föstudaginn langa og á annan í páskum. Einnig verður lokað sumardaginn fyrsta 24. apríl.
11.04.2025
Nú hefur síðasta hveitið verið malað í hveitimyllu KORNAX í Korngörðum – og þar með lýkur merkum kafla í íslenskri matvælaframleiðslu. Við hjá KORNAX viljum þakka starfsfólki myllunnar í Korngörðum fyrir ómetanlegt framlag í gegnum árin.
04.04.2025
Þessa dagana erum við að innleiða nýtt fjárhagskerfi hjá Líflandi. Það er flókið ferli sem við vonumst til að klára sem fyrst. Við viljum biðja viðskiptavini að sýna okkur þolinmæði ef einhverjar truflanir verða á starfseminni.
28.03.2025
Lífland óskar sauðfjárbændum góðs gengis í sauðburðinum, með von um gott og veðursælt vor. Hjá Líflandi færðu mikið úrval hreinlætis- og rekstrarvöru, bætiefna og hvers kyns hjálpartækja og áhalda sem nauðsynleg eru á hverjum bæ þegar staðið er í ströngu og vökunæturnar segja til sín.
25.03.2025
Ertu að fara í fermingu? Hjá Líflandi færðu fallegar og vandaðar fermingargjafir fyrir unga hestafólkið. Komdu og kíktu á fermingartilboðin og verslaðu fermingargjöfina.
19.03.2025
Sáðvörulisti Líflands fyrir vorið 2025 er kominn út í rafrænni útgáfu. Nú hefur ítarlegri umfjöllun um lykilvöruflokkana og helstu eiginleika þeirra verið bætt við og ætti það að auðvelda valið.
14.03.2025
Framtakssjóðurinn Horn III, sem er í rekstri Landsbréfa, hefur skrifað undir kaupsamning um sölu á 50% hlut í Líflandi til Þóris Haraldssonar sem verður þá eini eigandi Líflands.
11.03.2025
Í nýjum bæklingi um heyverkunarúrval Líflands, finnur þú allt um vöruúrvalið sem snýr að rúlluheyskap, stæðuheyskap og stuðningsvörum við verkun og frágang.
26.02.2025
Fataútsala Líflands er nú hafin í öllum verslunum Líflands og vefverslun. Við rýmum fyrir nýjum vörum og bjóðum nú 30-70% afslátt af reiðfatnaði og útivistarfatnaði.
20.02.2025
Dagana 20. febrúar - 3. mars verða Heilsudagar hestins í öllum verslunum Líflands og vefverslun. 15% afsláttur af hestafóðri og bætiefnum.