Fara í efni

Lífland stendur í flutningum fram að áramótum

Á næstu mánuðum verða töluverðar breytingar hjá Líflandi þar sem skrifstofa og vöruhús fyrirtækisins flytja í áföngum. Við erum að færa vöruhús, skrifstofur og verslun okkar í Reykjavík undir eitt þak að Korputorgi. Verslun okkar í Reykjavík flutti í lok nóvember í fyrra frá Lynghálsi í glæsilegt verslunarrými. Nú er komið að því að skrifstofa og vöruhús fylgi á eftir.

Skrifstofa Líflands er flutt að Reykjavíkurvegi 74 í Hafnarfirði, þar sem starfsemin verður tímabundið til áramóta, en þá verður skrifstofuaðstaða okkar á Korputorgi tilbúin.

Stefnt er að því að vöruhús Líflands flytji um miðjan október á Korputorg.

Við munum leggja okkur fram um að tryggja að þjónusta okkar raskist sem minnst á meðan á flutningum stendur.

Ef ykkur finnst við vera að missa einhverja bolta eða svör eru að dragast, endilega hafið samband við ykkar tengilið hjá Líflandi eða hringið í aðalnúmerið okkar, 540 1100, svo við getum tryggt að þið fáið úrlausn ykkar mála.

Upplýsingar um tengiliði okkar má finna hér

Einnig er hægt að hafa samband beint eftir málaflokkum:

Við biðjum viðskiptavini og samstarfsaðila um skilning á meðan á flutningunum stendur og þökkum kærlega fyrir þolinmæðina.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur á nýjum stað.