Fara í efni

Hestaferðin byrjar í Líflandi

Sumarið er tími hestaferðanna. Reiðhesturinn er aldrei betri en dansandi undir knapa í rekstri, en til að njóta ferðalagsins sem allra best er mikilvægt að muna eftir nokkrum ómissandi hlutum í ferðina.

Gleðilegt ferðasumar!

Fóður - Kjarnfóðurgjöf í náttstað getur gert kraftaverk fyrir lúin ferðahross. Mikilvægt er að fylgjast vel með rekstrinum og hafa auga með hestum sem fara að síga aftast og sýna þreytumerki. Reiðhestablandan Kraftur hjálpar hrossum við endurheimt eftir erfiðan ferðadag og styrkir þá fyrir næsta dag.

Bætiefni

  • Energy 1000 A/B Racing Booster er einstakur tveggja þátta fóðurbætir á þykknisformi, sem leggur til vítamín og nauðsynleg næringarefni til stuðnings orkuefnaskiptum og orkulosun. Kemur í hentugum túpum til að taka með í ferðalagið og styrkja hesta fyrir ferðadaginn.
  • Pre-Fuel Gel er skjótvirk orkuviðbót sem inniheldur lífsnauðsynlegar greinóttar amínósýrur sem styðja við hámarksframmistöðu þegar á reynir.
  • Lactese Plus er fóðurbætiefni á þykknisformi, sem leggur til vítamín og næringarefni sem styðja við mjólkursýruefnaskipti, orkulosun og vöðvavirkni hesta.
  • Refuel Gel er þykkni sem leggur til háan styrk rafvaka (elektrólýta) að viðbættum B-vítamínum og andoxunarefnum fyrir skilvirka endurheimt eftir mikla svitamyndun og áreynslu.
  • RecoBoost er steinefnafóður á þykknisformi, fyrir hesta sem leggur til nauðsynleg næringarefni sem tapast við áreynslu í æfingum og keppni.
  • Pavo Rehydrate bætir hestinum upp vökva, salt- og steinefnatap eftir langan ferðadag. Blanda má vökvanum í kjarnfóður, í vatn eða sprauta beint í munn hestsins.

 

Saltsteinar - Hestar svitna mikið á ferðalögum og það er mjög mikilvægt að þeir fái tækifæri til að vinna upp salttapið í náttstað. Saltsteinn er því nauðsynlegur í hverri ferð.

Hestanammi - Hestanammi er ómissandi í hverja hestaferð.

Hnakktöskur - Sumt er bara ekki hægt að geyma í trússbílnum. Hnakktöskur í úrvali til að geyma það sem þarf að vera í seilingarfjarlægð.

Teymingagjarðir - Níðsterkar teymingagjarðir framleiddar af íslenskum söðlasmiðum.

Teymingastubbar - Teymingastubbarnir eru ómissandi fylgihlutur við teymingagjarðirnar.

Flugnanet - Mývargurinn getur skemmt annars frábæran hestaferðardag. Flugnanet fyrir menn og hesta.

Flugnaúði - Mikilvægt er að ferðahestar fái góða næturhvíld til að geta tekist á við erfiða ferðadaga. Notið flugnaúða á hestana þegar komið er í náttstað og áður en lagt er af stað að morgni.

Stallmúlar - Stallmúlar eru ómissandi í hverja hestaferð. Margar gerðir og litir í boði svo að enginn þarf að vera eins.

Randbeitarstaurar - Það er öryggi í því að slá girðingu utanum reksturinn í stoppum til að reiðmenn geti áð og athafnað sig áhyggjulausir í kring um hrossin.

Randbeitarþræðir - Hvort sem þú vilt nota þráð, borða eða kaðal, þú færð allar gerðir í Líflandi.

Þráðspólur - Hvað er þægilegra í hestaferðina en þráðspóla, tilbúin með 300 metra þræði? Ef þú átt þegar þráðinn eigum við líka tómar spólur.

Ferðarafstöðvar - Litlar og handhægar ferðarafstöðvar til að hafa straum á girðingum yfir nóttina eða í lengri stoppum yfir daginn.

Undirdýnur - Undirdýnur létta þrýstingi undan hnakknum á löngum dögum. Hestarnir svitna minna undan náttúrulegum efnum eins og ull og bómull.

Sáraumhirða - Sáraumhirðan er nauðsynleg í hverri hestaferð. Meðhöndlum smásár hratt og vel til að minnka líkur á frekari afleiðingum.

Töskur fyrir hnakka - Settu hnakkinn þinn og beislakippuna í tösku í náttstað til að halda utan um öll þín reiðtygi á einum stað.

Hnakkaábreiða - Ábreiða á hnakkinn ver hann fyrir hnjaski í náttstað og í trússkerru.

Gelyfirdýnur á hnakka - Er hnakksætið heldur hart fyrir langa ferðadaga? Prófaðu að setja geldýnu yfir sætið á hnakknum þínum.

Fatnaður - Öllum finnst rigningin góð en það er samt óþarfi að blotna í gegn.