Karfan er tóm.
Vöruinnköllun - búfjárskothylki frá RWS
22.04.2026
Upp hafa komið tilfelli erlendis þar sem 9x17 búfjárskothylki frá RWS Gmbh fyrir Kerbl sem framleidd voru fyrir september 2024 voru ofhlaðin og gætu því í versta falli skemmt tækið sem hleypir af og leitt til alvarlegra meiðsla, sérstaklega á höndum. Við biðjum því alla sem gætu haft þessi hylki undir höndum að nota þau ekki og skila þeim til okkar. Kaupverð verður endurgreitt.
Kerbl skipti um framleiðslufyrirtæki eftir september 2024 og því eru öll skothylki sem seld hafa verið í Líflandi eftir þann tíma örugg.
Vörur sem inköllunin nær til:
- AK21201 græn, 50 stk í pakka
- AK21202 gul, 50 stk í pakka
- AK21203 rauð, 50 stk í pakka
- AK21204 blá, 50 stk í pakka

Innkallaðar vörur eru með eftirfarandi lotunúmerum:
(númerin má finna aftan á dósinni eða á innanverðu lokinu)
