Hafrar

Sumarhafrar TAIKA
Sumarhafrar TAIKA

Sumarhafrar TAIKA

Eiginleikar:
Vörunúmer 90175

Blaðmiklir hafrar, skríða seint. Finnskt yrki. 

 
Sumarhafrar TAIKA 20 kg

Vara ekki til sölu í vefverslun

Blaðmiklir hafrar sem skríða seint. Hávaxið, finnskt yrki með góðan strástyrk. Hefur þótt áberandi blaðríkt og seint skríðandi í íslenskum tilraunum. Sé það ræktað til þroska getur það gefið af sér hafra sem henta bæði til manneldis (hafravölsunar) og til fóðurs. Kornið er nokkuð stórt og með hátt innihald betaglúkana sem gerir það hentugt sem t.d. haframjöl. 

Hafrar eru heldur seinni til kornþroska en bygg, almennt nægjusamari á köfnunarefnisáburð, þolnari á súran jarðveg og þurrkþolnir. Hafrar geta gefið góða uppskeru og eru prýðilegt kjarnfóður fyrir skepnur. Auðveldast er að láta hafra ná þroska á sandjörð. Fuglar láta hafra frekar í friði en bygg og þeir eru almennt þolgóðir í haustveðrum. Hafrar henta vel sem skjólsáning en líka er sniðugt að sá þeim með ertum. Sumarhafrar hafa reynst vel til grænfóðurræktar í þurrum sumrum þar sem þeir eru þurrkþolnari en rýgresi.

Ráðlagt sáðmagn 200 kg/ha.

Taika fæst í 20 kg smásekkjum.

Meira um ræktun hafra. 

Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun en pantanir og fyrirspurnir berist til söludeildar í s. 540-1100 eða sadvara@lifland.is

Tengdar vörur

Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.

Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstubraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5| 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogi 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana