Heilhveitibrauð ll
Súrdeig uppskrift:
200 gr kornax heilhveiti (3 1/2 dl)
1/4 ltr súrmjólk
Súrdeig aðferð:
Kornax heilhveiti og súrmjólk blandað saman og látið standa í kæli 1-2 sólarhringa.
Uppskrift brauð:
súrdeig tilbúið
8 gr þurrger
1 1/2 dl volgt vatn
2 tsk salt
250 gr kornax heilhveiti (4 dl)
ca 150 gr kornax hveiti (2 1/2 dl)
Aðferð:
Eftir 1-2 daga er öllum efnum blandað saman í skál, hnoðið í nokkrar mínútur eða þar til deigið verður mjúkt. Látið standa í ca 20 mínútur áður en það er mótað. Brauðið er látið lyfta sér í u.þ.b. 45 mínútur og bakað í ca 35 mínútur við 200°c