Vinningsuppskriftir 2023

1.sæti

Þriggja setta jól
Höfundur: Dagný Marinósdóttir

1. sæti

Innihald

Smákökubotn
▪ 50 g smjör
▪ 150 g suðusúkkulaði
▪ 2 dl Kornax hveiti rautt
▪ 2 dl ljós púðursykur
▪ ½ tsk lyftiduft
▪ ¼ tsk salt
▪ 2 egg frá Nesbú
▪ 150 g Eitt sett súkkulaðiplata frá Nóa Síríus
▪ 1 dl hvítir súkkulaðidropar frá Nóa Síríus


Eitt sett lakkrístoppar
▪ 3 eggjahvítur
▪ 3 dl sykur
▪ 150 g Eitt sett lakkrískurl
▪ 1 tsk. Hockey Pulver duft

Aðferð:

Smákökubotn
Hitið ofninn í 180 gráður á undir og yfirhita
Bræðið smjör og suðusúkkulaði í potti
Blandið hveiti, púðursykri, lyftidufti, salti og eggjum saman í skál
Brædda suðusúkkulaðinu og smjörinu bætt útí og hrært örlítið til viðbótar, en ekki of mikið
Saxið hálfa Eitt sett súkkulaðiplötu (75 g) og bætið út í deigið ásamt hvítu súkkulaðidropunum.
Takið kúfaða teskeið af deiginu og raðið fallega á plötu með bökunarpappír á.
Skellið plötunni inn í ofn í 10 mínútur
Þegar smákökurnar eru tilbúnar er þeim leyft að kólna ögn áður en farið er í næstu skref

Lakkrístoppar
Minnkið nú hitann á ofninum niður í 150 gráður
Þeytið sykur og eggahvítur saman í góðan tíma þar til orðið bæði þykkt og létt
Bætið Eitt sett lakkrískurlinu út í blönduna
Raðið u.þ.b 1 tsk af blöndunni á bökunarpappír á plötu, sáldrið Hockey Pulver duftinu á lakkrístoppan og inní ofn í sirka 15 mínútur

Þegar bæði Eitt sett smákökurnar og lakkrístopparnir eru tilbúnir er komið að því að setja þetta allt saman. Þá er byrjað á því að bræða hinn helminginn af Eitt sett súkkulaðiplötunni og því smurt á smáköku kökubotninn. Þar ofan á eru lakkrístoppunum svo tyllt á og voila! Smákökurnar eru tilbúnar.

Verði ykkur að góðu

 

2.sæti

Karamellu Nínur
Höfundur: Nína Björk Þórsdóttir

2. sæti

Innihald

Botnar
▪ 200 g hakkaðar möndlur
▪ 200 g flórsykur
▪ 100 g Kornax hveiti
▪ 4 eggjahvítur
▪ 50 g sykur

Krem
▪ 1 dl sykur
▪ 1 dl vatn
▪ 4 eggjarauður
▪ 200 g smjör (mjúkt)
▪ 3-4 msk saltkaramellusósa (fer eftir smekk), keypt tilbúin eða sjá uppskrift hér fyrir neðan. Gott að láta kólna vel

Skreyting
▪ 2-3 pokar (300-450 g) Nóa Síríus Doré Karamellu súkkulaðidropar

Karamellusósa
▪ 100 g sykur
▪ 60 g vatn
▪ 90 g rjómi
▪ 1 tsk vanilla
▪ ½ tsk sjávarsalt

Aðferð

Botnar
Hitið ofninn í 175 gráður
Blandið saman möndlum, flórsykri og hveiti í skál og setjið til hliðar
Stífþeytið eggjahviítur og bætið sykri saman við í litlum skömmtum.
Blandið þurrefnum varlega saman með sleikju
Formið í litlar kökur á bökunarplötu með teskeið eða notið sprautupoka
Bakið við 175 gráður í 12-15 mínútur, passið að baka ekki of lengi svo þær harðni ekki of mikið. Látið kólna á bökunarpappírnum.

Karamellusósa
Sjóðið saman sykur og vatn þar til blandan verður koparbrún á litinn, mikilvægt er að hræra ekki í blöndunni á meðan. Hitið rjómann til að koma í veg fyrir að harðir kekkir myndist í sósunni þegar rjómanum er bætt út í.
Þegar blandan hefur náð koparlit er potturinn tekinn af hitanum og rjómanum blandað varlega saman við og hrært vel um leið. Bætið síðan vanillu og salti saman við. Kælið

Krem
Búið til sykursíróp með því að sjóða saman sykur og vatn. Sírópið er tilbúið þegar rákir eða þræðir myndast þegar gaffli er dýft í blönduna. Kælið aðeins
Stífþeytið eggjarauðurnar og hellið sykursírópinu í mjórri bunu út í eggjarauðurnar, þeytið vel á meðan. Blandan verður ljósgul og létt.
Skerið smjörið í litla bita og bætið einum og einum saman við á meðan haldið er áfram að þeyta. Þeytið áfram þar til kremið fær jafna áferð. Hér þarf að vera þolinmóður þar sem blandan verður stundum ójöfn og virðist kekkjótt.
Blandið karamellusósu saman við, ein matskeið í einu og þeytið vel á milli
Kælið kremið

Þegar kremið hefur verið kælt þá er því smurt á botninn og kökurnar kældar á meðan súkkulaðið er brætt.
Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði. Þegar súkkulaðið er tilbúið, dýfið hverri köku í súkkulaði.
Kökurnar er best að geyma í frysti og taka út rétt áður en þær eru bornar fram.

Verði ykkur að góðu

 

3.sæti

Brownie karamellutoppar
Höfundur: Baldvin Lár Benediktsson

3. sæti

Innihald

Brownie smákökudeig
▪ 230 g Síríus suðusúkkulaði
▪ 85 g smjör
▪ 150 g púðursykur
▪ 50 g sykur
▪ 2 egg
▪ 1 tsk vanilla
▪ 95 g rautt Kornax hveiti
▪ 20 g Síríus Kakó
▪ 2 g salt
▪ 2 g skyndikaffi duft

Karamellumiðja
▪ 170 g sykur
▪ 62 g smjör
▪ 340 g rjómi
▪ 22 g glúkósi
▪ 5 g sjávarsalt
▪ 230 g Síríus mjólkursúkkulaðidropar
▪ 50 g Síríus karamellukurl

Þeytt karamellukrem
▪ 370 g rjómi
▪ 100 g Síríus mjólkursúkkulaðidropar
▪ 100 g Síríus Doré súkkulaðidropar

Súkkulaðihjúpur
▪ 400 g Síríus suðusúkkulaði
▪ 100 g Síríus hvítir súkkulaðidropar

Aðferð:

Brownie smákökudeig
Bræðið smjör, skyndikaffi og súkkulaði í vatnsbaði.
Þeytið egg, vanillu og sykur þar til létt og ljóst
Bætið súkkulaðiblöndunni við eggin
Sigtið saman hveiti, kakó og salti, bætið út í skálina og blandið vel saman
Skammtið á bökunarplötu og bakið á 170 gráðum í 6 mínútur

Karamellumiðja
Hitið saman rjóma og glúkósa og setjið til hliðar.
Bræðið sykur í potti þar til hann er gullinbrúnn.
Bætið smjöri og heitum rjóma út í karamelluna, látið sjóða í smástund
Hellið yfir súkkulaðið, blandið saman með töfrasprota og bætið salti út í.
Setjið í kæli yfir nótt.
Sprautið dropa af kremi á smákökuna og dýfið í karamellukurlið.

Þeytt karamellukrem
Hitið 100 g af rjóma og hellið yfir súkkulaðið, blandið með töfrasprota.
Bætið restinni af rjómanum út í og látið storkna yfir nótt.
Þeytið upp kremið og sprautið ofan á smákökuna með karamellukreminu á og frystið.

Bræðið súkkulaði í vatnsbaði.
Dýfið smákökunni í súkkulaðið og látið storkna

Verði ykkur að góðu

Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstubraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5| 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogi 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana