Svampterta með döðlum og súkkulaði
4 egg
1,5 dl sykur
1 dl Kornax hveiti
1/2 dl kartöflumjöl
Bakað í tveim formum ca 24 cm. Við 200°C í 5 mín og síðan við 185°C í 10 mín.
Skorin í sundur
Krem:
50 gr suðusúkkulaði
3 eggjarauður
4 msk flórsykur
1 peli rjómi
1 dós perur
Súkkulaði brætt og kælt. Eggjarauður og flórsykur þeytt saman, súkkulaðinu bætt í og hrært vel í á meðan. Síðast er þeyttum rjómanum blandað saman við. Sett á milli og skreytt með perum og þeyttum rjóma.