Kornax hveiti er fyrirtaks hráefni til að baka úr kökur, sætabrauð og matarbrauð. Allar uppskriftirnar innihalda Rautt Kornax hveiti.
Rautt Kornax hveiti inniheldur um það bil 11% prótein sem er kjörið í alhliða heimabakstur.
Lífland - Kornax tekur gæðapróf af allri framleiðslu sinni. Í gæðaprófunum er ætíð fylgst með styrk glútensins og að ensímvirknin í mjölinu sé hæfileg til að hámarka baksturseiginleika hveitisins.
Hollráð við bakstur
- Kjörhiti gerdeigs er 27°c
- Blandið aldrei saman geri og olíu/feiti í upphafi
- Hyljið ætíð gerdeig með rökum klút
- Almennur hefunartími er 45-60 mínútur (fer eftir stærð brauðs)
- Í kökubakstri; hrærið smjör og sykur vel saman áður en eggjum er bætt út í á hægum snúningshraða
- Því hærra fituinnihald í brauði, þeim mun betur geymist það í frysti
- Olía/smjör gefur brauðum oft betra bragð og hefur góð áhrif á glútenvirkni í deiginu og auðveldar vinnslu
- Sykur gefur góðan ilm og gerir það að verkum að brauðin fá á sig fallegan gylltan blæ