Ítalskt pizzadeig
500 g blátt KORNAX brauðhveiti
2,5 dl vatn
7,5 g þurrger
0,5 dl olía
1 tsk salt
1 tsk sykur
Aðferð: Leysið gerið upp í volgu vatni. Bætið KORNAX brauðhveiti, sykri, salti og olíu við, hnoðið í um það bil 2 mínútur á lægsta hraða. Aukið hraðann lítillega og hnoðið í 8 mínútur. Mótið deigið og hefið í 45-60 mínútur við stofuhita undir rökum klút (má sleppa).
Humarpizza
Pizzasósa
Ostur
Humar
Hvítlaukur
Furuhnetur
Klettasalati og rifnum ferskum parmesan bætt á eftir að pizzan hefur verið tekin úr ofninum.
Bakist við: 150-190°C (fer eftir ofnum).
Baksturstími: 12-20 mínútur (fer eftir ofnum).