Innréttingar í fjós

Innréttingar

Lífland hefur um árabil boðið upp á heildarlausnir þegar kemur að því að innrétta kúa- og geldneytafjós. Lífland býður upp á mjög vandaðar innréttingar frá Royal De Boer sem eru framleiddar í hátæknivæddri verksmiðju í Leuwarden í Hollandi. Básabogarnir sem og átgrindur og læsigrindur henta einkar vel fyrir íslenskar kýr. GEA framleiðir einnig flórsköfuþjarka, hefðbundnar flórsköfur, fullkomin fóðurkerfi, kúabursta og ýmislegt fleira er viðkemur kúabúskap.

Nánari upplýsingar um ofangreindan búnað má nálgast hér

Básamottur
Lífland býður upp á níðsterkar og endingargóðar básamottur frá Kraiburg í Þýskalandi. Motturnar er ýmist hægt að fá stakar eða í heilum lengjum á hvert svæði.

Upplýsingar um Kraiburg mottur má nálgast hér

Mottur á flóra og steinristar
Lífland býður upp á gúmmímottur á lokaða flóra og steinbita. Motturnar draga úr álagi á klaufir og fætur, jafnframt eru þær einangrandi og gripir verða öruggari með gang. Þannig auka þær velferð gripanna.

Loftræsting
Lífland býður upp á Multifan viftur og loftræstistýringar frá Vostermans í Hollandi sem íslenskir bændur eru vel kunnir. Þá býðst einnig fullkominn loftræstibúnaður s.s. loftræstistrompar,veggventlar, viftur og stýringar frá Big Dutchman.

Upplýsingar um Multifan viftur og -stýringar má nálgast hér

Steinbitar
Lífland býður upp á vandaða steinbita í ýmsum lengdum og breiddum frá þýska fyrirtækinu Otte Beton og danska fyrirtækinu Thisted-Fjerritslev Cementfabrik. 

Upplýsingar um steinbita frá Otte Beton má nálgast hér

Upplýsingar um steinbita frá Thisted-Fjarritslev Cementfabrik má nálgast hér

 

 

 

Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstubraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5| 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogi 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana