Gulrótarkaka
250 gr Kornax hveiti
300 gr púðursykur
2 dl maísolía
4 egg
1 tsk vanillusykur
2 tsk salt
2 tsk lyftiduft
1 tsk natron(matarsódi)
1oo gr valhnetur
300 g rifnar gulrætur
Þeytið saman eggjum og púðursykri. Öðru hráefni er blandað út í og hrært saman við. Bakið í 26 sm klemmuformi í 1 klst.við 160°C.
Ostakrem:
375 gr rjómaostur
750 gr flórsykur
vanilludropar eftir smekk
Öllu hrært saman og sett á milli botnanna og ofaná.