Frönsk súkkulaðikaka
200 gr Síríus suðusúkkulaði
200 gr smjör (súkkulaði og smjör er brætt saman í vatnsbaði og síðan kælt)
4 egg
3 dl sykur (egg og sykur þeytt saman)
1 dl Kornax hveiti
100 gr heslihnetur með hýði (fínt malaðar)
Súkkulaðinu og smjörinu hrært saman við eggin og sykurinn, síðan er Kornax hveitinu og hnetunum bætt út í og hrært saman við.
Sett í smurt form og bakað við 200° í 35-40 mín. (Athugið að kakan er klesst þegar hún kemur úr ofninum).
Best er að geyma kökuna í ískáp, en taka út ca 1-1 1/2 tíma áður en hún er borin fram til þess að hún sé ekki hörð. Skreytt með flórsykri, jarðaberjum og kiwi (best að gera það ekki fyrr en hún er tekin úr ísskápnum)