Brauð ársins 2012
Bessastaðabrauð
1 ltr. vatn
700 gr. Kornax heilhveiti
600 gr. Kornax hveiti
25 gr. þurrger
35 gr. agavesýróp
25 gr. salt
200 gr. ristuð graskersfræ
40 gr. sólkjarnar
20 gr. rice crispies
40 gr. haframjöl
70 gr. maltflögur
Unnið í u.þ.b. 6 mínútur hægt og 5 mínútur hratt. Hvíldartími 2x15 mínútur. Brauðum slegið upp aflöngum og velt upp úr haframjöli. Brauðið er hefað í ca. 45 mínútur og síðan skornar þrjár rendur þvert í brauðið.
Bakstur og hitastig með hefðbundnum hætti fyrir brauð.
Bakari: Katrín Eiðsdóttir, Bakarínu við brúna