Hafrabrauð með eplum
3¾ dl Kornax hveiti
3¾ dl haframjöl
1¼ dl abt-mjólk, hrein
1¼ dl púðursykur
2 tsk sódaduft
2 tsk kanill
1 tsk sykur
1 tsk fennel fræ (má sleppa)
1 tsk salt
3 stk jonagold epli söxuð
3 stk egg
1 stk hvítlauksrif
Blandið saman sykri, mjólk og eggjum. Blandið þurrefnum í stóra skál og bætið vökvablöndunni og eplunum út í. Bakið brauðið í formkökuformi við 175°C í 60 mínútur. Kælið það í forminu í smá stund áður en það er losað úr forminu.
Mjög gott með rjómaosti!