Heysýnataka og fóðurráðgjöf

Sláttur

Heysýnataka borÁ síðastliðnum árum hefur Lífland aukið þjónustu við kúabændur, einkum á sviði ráðgjafar um fóðrun. Lífland hefur um árabil boðið upp á heysýnatöku og greiningu þeirra, í samstarfi við rannsóknarstofurnar Efnagreiningu ehf á Akranesi og Eurofins í Hollandi, en niðurstöður heysýna eru grundvöllurinn fyrir góðri fóðuráætlun. Sýnin eru tekin með heysýnabor úr fullverkuðum heyjum og send með skjótum hætti í greiningu. Niðurstöður greiningar berast svo a.m.k. 7-14 dögum eftir að sýnin eru send út, sem tryggir skjóta og góða þjónustu við bændur..

Hvernig gagnast niðurstöður úr heysýnum

Heysýni gefa upplýsingar um ástand og gæði gróffóðursins, sem er undirstaða fóðrunar á hverju búi. Margvísleg gildi eru mæld, m.a. þurrefnisinnihald, prótein, tréni, meltanleiki, sykur, gildi sem gefa vísbendingar um verkun og lystugleika (ammoníak og smjörsýra), AAT og PBV gildi auk stein- og snefilefna svo nokkur lykilatriði séu nefnd. Niðurstöðurnar einar og sér geta gefið vísbendingar um hvert þarf að stefna með heildarfóðrun gripanna, þá með tilliti til kjarnfóðurs og annarra fóðurefna sem gefin eru með heyjum. Niðurstöðurnar gagnast einnig beint í fóðuráætlunargerð.

Gerð fóðuráætlana

Lífland býður upp á fóðuráætlanagerð í NutriOpt fóðuráætlunarkerfinu í samstarfi við sérfræðinga Trouw Nutrition í Hollandi. Skoðað er hver af hinum fjölmörgu kjarnfóðurblöndum Líflands hentar best viðkomandi heyjum. Lífland hefur boðið upp á þessa þjónustu um árabil og er í góðu samstarfi við viðskiptavini þegar að fóðuráætlanagerð kemur, en margir viðskiptavina Líflands eru í fremstu röð meðal íslenskra mjólkurframleiðenda. 

Fóðuráætlanir ganga út á það að finna heppilegustu nálgun á fóðrun mjólkurkúa miðað við þau fóðurefni sem í boði eru, aðstæður og samsetningu hjarðarinnar, afurðir og síðast en ekki síst, lífeðlisfræði gripanna. Fóðuráætlanir gerir Gabríela M. Reginsdóttir (gabriela (hjá) lifland.is) fóðurráðgjafi Líflands.

Kýr

Eftirfylgni mikilvæg

Fóðuráætlanir og heysýni eru gott verkfæri til að nálgast fóðrun á skilvirkari og nákvæmari hátt, en hvorug tveggja er þeim annmörkum háð að vera nálgun á raunverulegar aðstæður. Því er eftirfylgni mikilvægur þáttur. Ráðgjafar Líflands heimsækja búin sé þess óskað og geta tekið út aðstæður og aðbúnað. Einnig býður Lífland bændum að fylgjast með niðurstöðum tank- og kýrsýna, hvort sem slíkt er sent reglulega til ráðgjafa fyrirtækisins eða með því að veita þeim aðgang að vefsvæði Auðhumlu þar sem nálgast má ítarlegri upplýsingar um framleiðslu hvers bús. Einnig eru ráðgjafar fyrirtækisins ávallt tilbúnir til skrafs og ráðagerða.

Gott fóður og gæðaeftirlit

Til að fylgja eftir kröfum samtímans um gott verð og jöfn og góð gæði kjarnfóðurs þá hefur Lífland yfir að ráða öflugu bestunarkerfi til utanumhalds um fóðuruppskriftir. Samhliða þessu er notast við innrauðum greiningarbúnað af fullkomnustu gerð, svokallað NIR tæki frá FOSS. Tækið greinir á skjótvirkan og nákvæman hátt efnainnihald hráefna og tilbúins kjarnfóðurs og eru framkvæmdar tíðar og reglubundnar mælingar á hráefnum og kjarnfóðri, sem samhliða bestunarkerfinu, gerir fyrirtækinu kleift að lágmarka sveiflur í efnainnihaldi fóðurs.

Vinsamlega hafðu samband og pantaðu heysýnatöku í tæka tíð. 

>> Panta heysýnatöku

Ráðgjafar Líflands veita nánari upplýsingar í s. 540-1100 eða heysyni@lifland.is

Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstubraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5| 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogi 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana