Eplabrauð
450 gr Kornax hveiti
2 msk Kornax rúgmjöl
2 msk hunang
15 gr þurrger
10 gr salt
2,5 dl eplasafi
2 msk olía
1/2 grænt epli skorið í litla bita.
Setjið allt hráefnið í skál nema olíuna og eplið. Síðan er olían sett í deigið og hnoðið saman. Eplið fer í alveg í restina, annars er hætta á að það kremjist allt. Látið deigið standa í 10-15 mín. undir rökum klút. Því næst mótum við deigið og setjum í form, hefum í ca. 30-40 mín.
Bakað við u.þ.b. 215 °C fyrir miðjum ofni.
Gott að pensla brauð með eggjavatni fyrir bakstur.