Melting & góðgerlar

Pavo Toxisave
Pavo Toxisave

Pavo Toxisave

Vörunúmer BTR10082

Pavo ToxiSave er fóðurbætiefni fyrir hesta sem verndar gegn skaðlegum áhrifum sýnilegs og ósýnilegs myglusvepps úr votheyi, undirburði eða kjarnfóðri. Styður einnig lifrarstarfsemi, ónæmiskerfi og meltingu.

 
 
 
 
Verðmeð VSK
12.990 kr.
Verðán VSK 10.476 kr.

Pavo ToxiSave 

Pavo ToxiSave er fóðurbætiefni fyrir hesta sem binst mýkótoxínum (eiturefni mynduð af sveppum) í meltingarvegi og stuðlar að útskilnaði þeirra úr líkama hestsins. Það verndar gegn skaðlegum áhrifum sýnilegs og ósýnilegs myglusvepps úr votheyi, undirburði eða kjarnfóðri. Styður einnig lifrarstarfsemi, ónæmiskerfi og meltingu.

Mýkótoxín (sveppaeitur) eru efnasambönd sem myndast geta þegar ákveðnar tegundir eiturmyndandi sveppa ná að hreiðra um sig í fóðri. Sveppaeitrið getur haft margvísleg heilsuspillandi áhrif á hesta.  

ToxiSave stuðlar að útskilnaði mýkótoxína 

Umhverfi og fóður hestsins getur innihaldið myglu án sýnilegra einkenna. Myglusveppir geta náttúrulega framleitt mýkótoxín, sem eru skaðleg efni sem geta haft ýmis neikvæð áhrif á heilsu. Pavo ToxiSave hjálpar til við að fjarlægja umrædd skaðleg efni úr líkama hestsins. 

Gróffóður sem uppspretta mýkótoxína 

Flestir hafa einhvern tíma séð mjög myglaðar rúllur af gróffóðri og vita (vonandi) að slíkt ætti ekki að gefa hestum. Hins vegar er mygla og þau mýkótoxín sem hún getur myndað ekki alltaf sýnileg. Vel útlítandi og lyktandi gróffóður, en einnig undirburður og kjarnfóður, geta innihaldið myglu og þar með mýkótoxín. Það er því líklegt að hestar innbyrði eða andi að sér mýkótoxínum án þess að eftir því sé tekið. 

Þegar mýkótoxín berast í líkama hestsins geta þau frásogast í blóðrásina og dreifst um líkamann. Hestar eru mjög viðkvæmir fyrir mýkótoxínum og því getur mikil útsetning fyrir þeim haft veruleg áhrif á heilsu þeirra. 

Mýkotoxínbindiefni: mýkótoxín á brott

Pavo ToxiSave er mýkótoxínbindiefni sem inniheldur virk innihaldsefni sem bindast mýkotoxínum í meltingarveginum þar sem þau svo skiljast út með Pavo ToxiSave og berast út með skítnum. Mýkótoxínin geta þar með ekki frásogast í blóðrásina og valdið tjóni. 

Að auki inniheldur Pavo ToxiSave innihaldsefni sem styðja við almenna heilsu hestsins með því að: 
• Styðja við heilbrigða lifrarstarfsemi 
• Styrkja ónæmiskerfið 
• Stuðla að heilbrigðri meltingarstarfsemi 

Skoðaðu gróffóðrið þitt! 

Mygla og mýkótoxín eru ekki alltaf greinanleg með sjónrænu mati eða lykt. Ef þú tekur eftir myglu í gróffóðri eða undirburði skaltu fjarlægja mygluna strax svo hesturinn innbyrði hana ekki eða andi að sér. Mikilvægt er að þrífa vel, þar sem mýkótoxín eru oft einnig til staðar í fóðrinu í kringum sýnilega mygluna. 

Hafðu í huga að mygla og mýkótoxín mynda langa sveppþræði, sem geta dreifst í meira magn af gróffóðri en sýnilegt er. Ef þú sérð mikla myglu er oftast best að henda allri rúllunni eða undirburðinum. 

Pavo ToxiSave getur hjálpað til við að draga úr skaða mýkótoxína, en það er ekki varanleg lausn fyrir lélegt gróffóður eða myglaðan undirburð. 

Helstu eiginleikar 

• Hjálpar til við að fjarlægja mýkótoxín úr líkama hestsins 
• Inniheldur mýkótoxínbindandi efni 
• Styður við heilbrigða lifrarstarfsemi 
• Styrkir ónæmiskerfið 
• Styður við heilbrigðari meltingu
• Sérþróað fyrir hesta 

Notkun 

Pavo ToxiSave hentar fyrir öll hross sem: 
• Hafa innbyrt eða andað að sér myglu og myglugró úr gróffóðri eða undirburði 
• Sýna óljós einkenni, sérstaklega tengd meltingu, öndun, þyngdartapi og/eða hegðun 

Innihaldsefni: Þurrkað sykurrófuduft, með melassa / refasmáramjöl (alfalfa) / hveitifóður / þistilfræ (malað) / gerafurðir. 

Greiningarþættir: Orka (DE) – 0 MJ/kg, kalsíum 0,26%, hráaska 15,1%, hráfita 5,7%, hrátrefjar 16,3%, hráprótein 11,2%, magnesíum 0,09%, fosfór 0,07%, kalíum 1,28%, natríum 0,1%, sterkja 4,2%, sykur 3,9%.
Aukefni: Snefilefni: Bentonít 88.000 mg, sepíólít 19.800 mg.

Almennar upplýsingar 
• Þyngd: 3 kg í poka

Daglegar fóðrunarleiðbeiningar 

Hóflegur stuðningur : 2x 30 g á dag 

Mikill stuðningur : 3x 30 g á dag 

Gefið í að minnsta kosti 30 daga. 

Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.

Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstubraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5| 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogi 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana