Flýtilyklar
Rafgirðingaspennar
Hotline Roc 2500 spennir
Hotline Roc spennir 230V og 12V varaaflsmöguleiki. 13,75joul.
Hotline Roc 2500 spennirinn er hágæða, sérlega öflugur spennir sem hannaður er fyrir langar, varanlegar girðingar og hentar ekki fyrir stuttar eða færanlegar girðingar.
Tvöfaldur straumútgangur eykur notkunarmöguleikana þar sem hægt er að nota á sama tíma lægri útganginn fyrir td hestagerði eða rúllustæður við hús og hærri útganginn á lengri, varanlegar girðingar. Ef verið er að nota báða útgangana samtímis skal hafa í huga að ef spennan minnkar á hærri útganginum minnkar hún líka á lægri útganginum.
Roc 2500 hefur einnig innbyggðan útleiðslumæli/afkastamæli. Því fleiri ljós sem lýsa með hverjum púlsi, því meiri straumur er á girðingunni. Ef aðeins fá ljós kvikna við hvern púls eru líkur á því að girðingin sé slitin eða skammhlaup sé á henni. Ef aðeins fá ljós eru kvikna ekki við hvern púls er líklegt að gróður sé vaxinn upp í girðinguna og leiði út.
Auðvelt er að setja upp og nota Roc 2500 spenninn. Þar sem spennirinn er húsarafmagnstæki þarf hann að hanga innandyra eða í vatns og vindheldum kassa.
Hægt er að tengja sírenu (fylgir ekki með) við Roc 2500 spenninn sem fer í gang ef straumur á girðingunni fer undir fyrirfram ákveðin mörk. 12V varaaflsmöguleikinn (ef bætt við) tekur við og heldur uppi straumi á girðingunni farii 230V rafmagn af. Skjárinn fylgist með stöðu rafgeymisins, sem hleðst rólega þegar 230V straumur er tengdur og notaður.
Bláa viðvörunarljósið lætur vita að spennirinn ætlar að þrýsta upp spennu á girðinguna til að bregðast við útleiðslu og halda uppi spennu girðingarinnar. Öflugir spennar geta skaðað fólk og dýr, sérstaklega ef til þess kæmi að einstaklingur fengi mörg spennuhögg. Spennuaukningarmöguleikinn tryggir að spennirinn spennirinn getur aukið á öruggan hátt, spennuna á girðinguna, sé þess þörf. Spennuaukningin verður ekki umsvifalaus heldur gefur spennirinn viðvörunarmerki svo að fólk eða dýr geti komið sér í burtu frá girðingunni.
Baklýstur LCD skjár gefur upplýsingar á greinilegan og skýran hátt og þar sjást einnig upplýsingar þegar viðvörunarkerfi er stillt.
Varaaflsviðvörun sýnir stöðu á 12V varaaflsgeymi
LED skjár sýnir á einfaldan hátt hvernig afköstin eru á girðingunni
Skjárinn sýnir hver spennan er á bakaleiðinni, sem sýnir hvort mikil útleiðsla sé á leiðinni.
Jarðtenging er vanmetnasti og jafnframt einn mikilvægasti hluti rafmagnsgirðinga. Tveir jarðtengingarmöguleikar eru á spenninum, sem auðveldar að tengja mörg jarðtengi.
Aftaná spenninum er tengi fyrir 12V varaaflsmöguleika og hægt að tengja sírenu. Hvorugt fylgir með.
Helstu kostir:
Öflugur 230V húsarafmagnsspennir
Tveir útgangar fyrir hærri og lægri spennu
Innbyggður afkastamælir
Öflugt ABS hylki
Hentar vel fyrir hross, svín, kindur, geitur og nautgripi
Hægt að nota við allar gerðir rafmagnsvírs
Hentar fyrir allt að 50km girðingar (miðað við einn streng)
Orkugjafi: 230V og 12V varaaflsmöguleiki
Orkunotkun: Hærri útgangur 23W, lægri útgangur 8W
Gerð orkugjafa: 230V
Hámarks drægni: Hærri útgangur 50km, lægri útgangur 8km
Orka út Joules: Hærri útgangur 13,75J, lægri útgangur 4,8J
Volt út í girðingu: Hærri útgangur 10.000, lægri útgangur 10.000
Volt við mikla útleiðslu: Hærri útgangur 6.200, lægri útgangur 4.700
Orkustillingar á straumi: Já
Aðvörunarljós lág spenna: Já
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.