Bætiefni fyrir hunda og ketti

ProBio góðgerlar f. ketti
ProBio góðgerlar f. ketti

ProBio góðgerlar f. ketti

Eiginleikar:
Vörunúmer MLFP10027

ProBio þykkni er góðgerlabætt bætiefni fyrir ketti, bæði fullorðna og kettlinga. ProBio þykknið inniheldur nauðsynlega góðgerla sem koma stöðugleika á magaflóru og meltingu. 15ml túpa. 

ProBio góðgerlar f. ketti - 2.290 kr.
Varan er ekki til í netverslun okkar eins og er en getur verið til í öðrum verslunum eða á miðlager okkar.
Frekari upplýsingar fást hjá söluráðgjafa í síma 540-1100.
Verðmeð VSK
2.290 kr.
Verðán VSK 1.847 kr.

ProBio þykkni er góðgerlabætt bætiefni fyrir ketti, bæði fullorðna og kettlinga. Sýnt hefur verið fram á að viðbættir Enterococcus faecium góðgerlar í fóðri kettlinga hafa jákvæð áhrif á ónæmiskerfi þeirra. 

ProBio þykknið er framleitt af Mervue Laboratories á Írlandi. 

ProBio þykknið inniheldur hagstæða góðgerla sem koma stöðugleika á magaflóru og meltingu þegar magastarfsemi raskast t.d. vegna:

  • Fæðuóþols
  • Í kjölfar sýklalyfjagjafar
  • Við ormahreinsun
  • Vegna streitu
  • Við fóðurbreytingar
  • Vegna eitrunar

Kettlingar: Sýnt hefur verið fram á að með notkun góðra bætiefna með heppilegu innihaldi góðgerla sé hægt að draga úr niðurgangstilfellum í ungviði, einkum þegar vanið er af spena. ProBio er auðmeltanlegt og fyrsti valkostur fyrir kettlinginn þinn! 

Góð ráð frá dýralækninum:

  • Settu þykknið á nef eða á framfót og kötturinn mun sleikja þykknið.
  • Blandaðu þykkninu við fóður. Blöndun í blautfóður auðveldar alla gjöf.
  • Settu þykknið á fingurgóm og svo upp í köttinn.

Innihald:
Glýserín, maltkjarni (Malt Extract), sólblómaolía, ger og bætibakteríuörvandi efni (prebiotic manooligosaccharides og β-glucans).

Fóðrunarleiðbeiningar:
Gefið um munn eða bætið út á fóður eins lengi og þörf krefur. Gefa má þykknið beint í munn með sprautunni sjálfri eða blanda því í fóður. Gefa má ProBio eins lengi og þurfa þykir og jafnvel að staðaldri. 

Fyrir ketti sem eru með mikla truflun á magastarfsemi ætti að gefa efnið 2 - 3svar á dag.  

  • Kettlingar yfir 12 vikna aldri 1 - 2kg: 1 ml daglega.
  • Kettir 2 - 5kg: 2 ml daglega.

Kettir þurfa ávallt að hafa aðgang að fersku drykkjarvatni. 

Geymsla: Geymið á köldum og þurrum stað við hitastig undir 25°C og ekki í beinu sólarljósi.

Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.

Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstubraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5| 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogi 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana