Flýtilyklar
Áburður
Gróðurkalk - skeljasandur 25 kg
Þurrkaður og sigtaður skeljasandur. Gróðurkalk er kalkríkt og nýtist sem kalkáburður á grasflatir og garða, en er einnig hentugt í sandböð fyrir hænsni auk þess sem fuglarnir nýta sér skeljasandinn sem kalkuppsprettu.
Gróðurkalk er náttúrulegur íslenskur skeljasandur sem búið er að þurrka og sigta.
Gróðurkalk er kalkríkt og nýtist sem kalkáburður á grasflatir og garða, en er einnig hentugt í sandböð fyrir hænsni auk þess sem fuglarnir nýta sér skeljasandinn sem kalkuppsprettu.
Notkun:
Grasflatir 15-60 kg/ 100 m2
Limgerði: 5-40 kg / 100 m2
Grænmetisgarðar: 10-100 kg 100 m2
Ekki bera skeljasand eða annan kalkáburð á kartöflugarða.
Fyrir hænsni:
Hænum er eðlilegt að róta og baða sig í sandi eða öðrum lauslegum undirburði. Gott er að hafa skeljasand aðgengilegan í grunni fati eða pönnu og bæta á hann eftir þörfum. Hænurnar munu bæði baða sig í sandinum en einnig innbyrða hann sem kalkgjafa sem nýtist við myndun eggjaskurnar.
Efnainnihald:
Kalk 34%
Magnesíum 1,2%
Járn 0,85%
Inniheldur jafnframt: Si, Al, Mn, Ti, P, K og Na í snefilmagni.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.