Öryggisvesti karlar

Hit-Air H2 öryggisvesti
Hit-Air H2 öryggisvesti

Hit-Air H2 öryggisvesti

Eiginleikar:
Vörunúmer BHA-H2-0

Hit-Air vestið er hannað til að draga úr alvarlegum áverkum sérstaklega á hálsi, bak og hrygg sem geta orðið við fall. Vestið er aðeins 0,25 sekúndur að blásast út og er einstaklega hljóðlátt. 

Hit-Air H2 öryggisvesti XS - 96.900 kr.
Hit-Air H2 öryggisvesti S - 94.900 kr.
Hit-Air H2 öryggisvesti M - 94.900 kr.
Hit-Air H2 öryggisvesti L - 94.900 kr.
Verðmeð VSK
96.900 kr.
Verðán VSK 78.145 kr.

H2 vestið frá Hit-Air kemur með spjöldum að framan og aftan. Loftpúðinn nær frá hálsi og vel niður mjóbakið.
Vestið er fest að framan með stillanlegum smellum og aðlagast því vel að knapa. Að auki er hægt að kaupa framlengingu á vestð sem gefur allt að 10cm stækkun. Sem hentar vel ef vestið er notað af mismunandi knöpum eða knapi vill hafa valkostinn að geta verið í þykkari flík undir eða ekki.

Hit-Air vestið blæs upp þegar knapi fellur af baki. Vestið er tengt við hnakkinn með ól og losnar það frá við fall og við það blæs út vestið út. Það er aðeins 0,25 sekúndur að blása út og er því orðið fullblásið þegar knapi kemur í snertingu við jörðu. Vestin eru hönnuð til að vernda viðkvæmustu svæðin háls, bak og hrygg. Það er einstaklega hljóðlátt og því minni líkur á að hestur verður var við og fælist þegar vestið er virkjað.
Öll vestin frá Hit-Air eru með séreinkennandi hálspúða sem er hannaður til að draga úr möguleikum á alvarlegum hálsáverka.
Þegar vestið er búið að blása út er hægt að pakka því aftur saman og mikilvægt er að skipta um co2 hylki áður en notkun hefst á ný.
Með vestinu fylgja öll nauðsynleg verkfæri og leiðbeiningar til að skipta um hylki.
Ráðlagt er að fara yfir vestið árlega með því að virkja það með hylki í eða eftir sex virkjanir eða föll.
Vestið er CE merkt NF572-800:2022

Með vestinu fylgir:
- co2 hylki
- verkfæri og leiðbeiningar til að skipta um hylki
- festingar frá hnakki í vestið
- ábyrgðarskírteini

*Lágmarksþyngd knapa er 25kg til þess að hægt sé að virkja vestið við fall.
Knapar yngri en 18 ára geta notað vestið með 1621-2 skjöld sem hægt er að festa á vestið.

Hvernig á að skipta um hylki (ýttu á hlekkinn)
https://www.youtube.com/watch?v=6qbj_LtRpG0

Leiðbeiningar í PDF
https://www.hit-air.com/media/006/202404/CE-manual-E-F-D-N20240221.pdf 

Stærðartafla hylkja:

H2        
Stærð XS S M L
Hylki 50cc 50cc 50cc 60cc


Stærðartafla
:

Stærð XS S M L
Hæð 135-150cm 150-165cm 160-180cm 175-190cm
Brjóst 70cm 80cm 85cm 90cm
Mitti 55-65cm 60-80cm 70-90cm 85-105cm

Hit-Air vestin er nýsköpun í öryggi fyrir hestamennsku og eru framleidd af frumkvöðlum uppblásin öryggisvesta. Hit-Air hefur sérhæft sig í uppblásnum öryggisvestum síðan 1985. . Hit-Air er margverðlaunað fyrir vestin sín þegar kemur að bæði öryggi og gæðum. Uppblásin öryggisvesti hafa verið notuð í mótorhjólaíþróttum til margra ára og hafað sannað sig ómetanleg við að bæta öryggi og draga úr alvarlegum meiðslum. Innleiðing uppblásna öryggisvesta í hestamennskuna hefur veitt ótrúlegan árangur og er frábær viðbót í öryggi knapa. 

 

Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.

Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana