Flýtilyklar
Foran hestabætiefni
Foran Nutri-Gard
Styður við heilbrigða meltingu hestsins með góðgerlabætandi og sýrujafnandi efnum, B-vítamínum og trefjum. Hentar hestum undir álagi eða með viðkvæma meltingu, lystarleysi eða í fóðurbreytingum, dregur úr sýrustigi og magasýrum.
NUTRI-GARD - FYRIR ALHLIÐA HEILBRIGÐI MELTINGAR
Nutri-Gard veitir stuðning við magaheilbrigði með öflugum góðgerlabæti, auðmeltanlegum trefjum og B-vítamínum til að örva átlyst.
EIGINLEIKAR & ÁVINNINGUR
• Góðgerlaafleiður – styðja við heilbrigða meltingu og ónæmiskerfi
• Góðgerlabætir – stuðlar að heilbrigðri örveruflóru í stórgirni
• B-vítamín – styður við aukna lyst og hámarkar nýtingu fóðurs
• Pektín – hjálpar til við að draga úr magasýrum
• L-þreónín – nauðsynlegt fyrir framleiðslu slíms sem ver meltingarveginn
• DL-metíónín – stuðlar að eðlilegri ensímvirkni í þörmum
• Hafratrefjar – náttúrulega ríkar af beta-glúkönum
• Eplabragð – mjög bragðgott
HENTAR VEL FYRIR
• Hesta sem eru viðkvæmir fyrir magasýrum eða sýrustigi í stórgirni
• Hesta sem þurfa aukinn stuðning við meltingarveg
• Hesta undir álagi með skert ónæmissvar
• Hesta sem fá mikið kjarnfóður og lítið gróffóður
• Hesta sem þyngjast illa og hafa lélegan holdstuðul
• Hesta með skerta lyst
• Hesta sem eru reglulega í ferðum, keppni eða undir öðru þjálfunarálagi
• Til að viðhalda jafnvægi iðraflóru við fóðurbreytingar, t.d. við upphaf sumarbeitar
Aukefni: Vítamín (pr. kg / per 40 g): 3a890 Kólínklóríð – 10.000 mg / 400 mg, 3a316 Fólínsýra – 2.650 mg / 105 mg, 3a820 B1-vítamín – 1.715 mg / 69 mg, 3a825ii B2-vítamín – 620 mg / 25 mg, 3a831 B6-vítamín – 785 mg / 31 mg, B12-vítamín – 5,1 mg / 200 µg. Amínósýrur (pr. kg / per 40 g): 3c410 L-þreónín – 81.100 mg / 3.240 mg, 3c301 DL-metíónín – 32.800 mg / 1.310 mg.
Greiningarþættir: Hráprótein 15,7%, hrátrefjar 10,4%, hráfita 0,8%, hráaska 7,1%, raki 8,8%, natríum 0,4%.
Innihald: Hafratrefjar, gerafurðir, inúlín, pektín.
Leiðbeiningar um gjöf: Blandið í fóður.
Ein skeið inniheldur u.þ.b. 20 g.
Fóðrunarleiðbeiningar:
25 g daglega m.v. 300 kg lífþunga (rúmlega ein skeið á dag)
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.