Kjúklingabúið Vor er eitt af stærri kjúklingabúum landsins en að Vatnsenda hefur verið ræktaður kjúklingur frá 1978.
Árið 2021 voru tvö ný eldishús tekin í notkun en með þeim þrefaldaðist framleiðslugeta búsins og telur nú 40.000 fugla.
Laugardaginn 3. júní frá kl. 13-17 verður opið hús á Vatnsenda þar sem tilgangurinn er að fræða almenning um búskapinn.
Viðburðurinn er hluti af fjölskyldu-og menningarhátíðinni Fjör í flóa sem sveitarfélagið Flóahreppur heldur ár hvert.
Lífland selur allt fóður til búsins auk þess sem stór hluti búnaðar í nýju eldishúsunum er frá Líflandi og verða tengliðir fyrirtækisins á staðnum.
>> Skoða viðburðinn á Facebook