Nýr framkvæmdastjóri Líflands/Kornax

Guðný Benediktsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Líflands/Kornax frá og með 1. september næstkomandi. Guðný lauk prófi í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1989 með áherslu á stjórnun og rekstur og MBA frá Colorado State University árið 1991.  Hún hefur fjölbreytta stjórnunarreynslu að baki úr ólíkum greinum atvinnulífsins. Síðast gegndi hún starfi forstöðumanns gæða- og öryggismála hjá Sjóvá.

Lífland er einn stærsti framleiðandi og þjónustuaðili á hvers konar fóðurvöru á Íslandi.  Á undanförnum árum hefur Lífland byggt upp nýja og fullkomna fóðurverksmiðju á Grundartanga, sem verður endanlega öll tekin til starfa nú í haust.  Þá er Lífland einnig umsvifamikill innflytjandi og seljandi á vörum tengdum landbúnaði.  Lífland á og rekur verslanir í Reykjavík og á Akureyri þar sem þessar vörur eru m.a. seldar en auk þess eru þær verslanir öflugar í sölu á vörum tengdum hestaíþróttum og gæludýrahaldi.  Kornax er stærsti framleiðandi og þjónustuaðili hér á landi með kornvörur, hveiti og aðrar vörur tengdar bakaríum og bökun almennt.  Kornax á og rekur einu hveitimyllu landsins, sem staðsett er í Reykjavík.  Þá er Kornax innflytjandi á fóðri og vörum fyrir gæludýr ásamt fleiri vöruflokkum.  Félögin hafa á undanförnum árum ráðist í verulegar fjárfestingar til þess að geta boðið framúrskarandi vöru og þjónustu, sem er kjarninn í framtíðarsýn félagsins.

Guðný mun veita forystu fjölbreyttri framleiðslu-, sölu- og þjónustustarfsemi Líflands/Kornax og auk þess mun hún í krafti reynslu og þekkingar sinnar leiða áframhaldandi þróun félaganna til að bjóða viðskiptamönnum bestu þjónustu og vörugæði.

Guðný er gift Guðna Ingimarssyni, verkfræðingi og eiga þau tvo syni.


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana