Lokakvöld Meistaradeildar Cintamani var gríðarlega spennandi og mikil barátta var um fyrsta sætið í einstaklingskeppninni á milli þeirra Jakobs Sigurðssonar og Árna Björns Pálssonar. Árni Björn stóð þó uppi sem sigurvegari í einstaklingskeppninni eftir kvöldið en Jakob sigraði töltkeppnina.
Lið Líflands í Meistaradeild Cintamani fór með sigur úr bítum í liðakeppninni og sigraði einnig liðaskjöldinn fyrir töltið þetta kvöld.
Við erum stolt af liðinu okkar og knöpunum sem það skipaði en það eru þeir John Kristinn Sigurjónsson, Davíð Jónsson, Sigursteinn Sumarliðason, Guðmundur Björgvinsson og Jakob Svavar Sigurðsson.
Við hjá Líflandi óskum þeim öllum innilega til hamingju!