Lífland og Landsmót hestamanna undirrituðu í dag samning um samstarf á Landsmóti hestamanna sem fram fer á Gaddstaðaflötum á Hellu 30.júní til 6.júlí n.k.
Lífland mun verða með verslun á markaðssvæði Landsmóts og mun auk þess styrkja mótshaldið með ýmsum hætti.
„Við höfum átt gott samstarf við hestamenn í gegn um tíðina, og við komum því að sjálfsögðu veglega að Landsmóti hestamanna í sumar sem er hápunkturinn í starfi hestahreyfingarinnar“ segir Þórir Haraldsson framkvæmdastjóri Líflands.
Lífland hefur verið styrktaraðili Landssambands hestamannafélaga og Landsmóts hestamanna um árabil, og hefur verið einn aðalstyrktaraðila á síðustu Landsmótum.
Axel Ómarsson framkvæmdastjóri Landsmóts hestamanna er að vonum ánægður með þessa aðkomu Líflands að mótinu. „Við hestamenn erum lánsamir að eiga góða og trygga bakhjarla eins og Lífland. Ég fagna því að okkar góða samstarf eflist nú enn frekar“.