Landsmót hestamanna hefst á Rangárbökkum Hellu n.k. sunnudag 3. júlí og stendur til sunnudagsins 10. júlí. Mótið er einn stærsti íþróttaviðburður landsins og margir orðnir spenntir að mæta loksins á Landsmót.
Að sjálfsögðu verður Lífland á svæðinu með verslun í markaðstjaldinu. Verslunin opnar á miðvikudag og verður opin miðvikudag og fimmtudag frá 10 - 18 en föstudag og laugardag verður opið frá 10 – 20.
Í boði verður gott úrval af búnaði fyrir bæði hross og knapa, hvort sem er í hestaferðina, á keppnisvöllinn eða hinar almennu útreiðar. 20% afsláttur verður á völdum vörum og mun starfsfólk veita afgreiðslu og ráðleggingar með bros á vör.
Pavo fóðurráðgjöf
Í Pavo horninu í verslun Líflands á svæðinu verður Rob Krabbenborg hestafóðurfræðingur frá Pavo dagana 7.-9. júlí. Þar mun Rob veita gestum og gangandi ráðleggingar og ráðgjöf um allt mögulegt sem lýtur að hestafóðrun og fóðurtengdri velferð.
Að auki flytur Rob fræðsluerindi um mismunandi hliðar hestafóðrunar en nánari tímasetning verður kynnt á Landsmóti. Staðsetning fyrirlestranna verður í markaðstjaldinu á sameiginlegum bás Horses of Iceland, RML og Bændasamtakanna. Erindin eru flutt á ensku.
Fimmtudagur 7. júlí - kl. 11:00- Ræktun og uppeldi: Fóðrun ræktunarhesta
Föstudagur 8. júlí- kl. 12:30 – Fóðrun keppnishesta
Laugardagur 9. júlí - kl. 12:00– Fóðrun reiðhesta: Tíu gullvægar reglur um fóðrun íslenska hestsins
Hlökkum til að sjá ykkur!
Kveðja, starfsfólk Líflands