Fákur og Lífland brydda upp á þeirri nýung að bjóða sérmerktan fatnað fyrir Hestamannafélagið Fák sem að meðal annars verður Landsmótsfatnaður Fáksmanna. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi í línunni og fá Fáksmenn afslátt af fatnaðinum auk þess sem að merkingin fylgir með. Fatnaðurinn er fyrirfram merktur svo að ekki þarf að bíða eftir merkingu eftir að flík er valin.
*Softshell peysa í unisex sniði. Með endurskinsröndum, vindheld og vatnsfráhrindandi. 13.590.- til Fáksfélaga, merkt Fáki.
*Hlýr og mjúkur, síðerma flísbolur í dömu og herrasniði. Tilvalinn undir softshell peysuna. 4.590.- til Fáksfélaga, merkt Fáki.
*Flott húfa til að nota undir hjálminn eða bara í útivistina. 1.990.- til Fáksfélaga, merkt Fáki.
*Buff fyrir alla í fjölskyldunni. 1.500.- til Fáksfélaga, merkt Fáki.
*Þriggja laga útivistabuxur í dömu og herrasniði. Frábærar í útivistina, vindheldar og vatnsfráhrindandi. 12.690.- til Fáksfélaga, merkt Fáki.
Nú er um að gera fyrir Fáksfélaga að sýna samstöðu og fjölmenna á Landsmót í Fáki í merktum fatnaði.