Flýtilyklar
Höfuðleður
Hrímnir Heritage D Aurora
Fallegt höfuðleður úr Hrímnir Heritage línunni í litum norðurljósanna.
Hin vinsælu Heritage höfuðleður til að fá einstaka og fágaða hönnun. Fyrirmynd þessara fallegu ennisóla er fundin í gömlum heimildum frá víkingatíma og tengir þannig nútíma íslenska hestinn við hans löngu sögu. Á þessu Heritage höfuðleðri eru skrautsteinar í litum innblásnum af íslenskri náttúru.
- Hágæða olíuborið leður fyrir aukna endingu og mýkt.
- Ryðfríar sylgjur með rúllum til að auðvelda stillingu.
- Hlíf bakvið sylgjurnar til að forðast það að þær klípi í hestinn.
- Álímdir skrautsteinar
- Litur: Aurora - Innblásið af íslenskri náttúru.
- Svart leður
- UEPO skráð hönnun
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.