Tvíbrotin mél

Fager JULIA Baby Fulmer
Fager JULIA Baby Fulmer

Fager JULIA Baby Fulmer

Eiginleikar:
Vörunúmer FAGJULIA105BF

Fager JULIA mélið sameinar bragð sætmálms og kopars og jafnvel sérvitrustu og viðkvæmustu hross taka þau í sátt. 

Fager Julia Baby Fulmer - 15.992 kr.
Fager Julia Baby Fulmer - 15.992 kr.
Verðmeð VSK
15.992 kr. Verð áður19.990 kr.
Verðán VSK 12.897 kr.

Fager JULIA mélið er mótað eftir munni hestsins. Það gefur tungunni mikið pláss og færir þrýsting taumsambandsins af tungunni yfir á tannlausa bilið.  

Koparrúllan í bitanum gefur sterkari áhrif en flatur biti þar sem hún er minni en hærri. Hún gefur hestinum líka eitthvað til að leika við með tungunni.

JULIA mélin virka sérlega vel á hesta sem vilja leggjast á tauminn.

Þegar þrýstingur er settur á tungu viðkvæmra hesta geta þeir sýnt ýmis merki ósættis og óþæginda. Hér eru nokkur af algengum viðbrögðum hesta með viðkvæma tungu.

  • Þeir reyna að draga tunguna upp og yfir mélin.
  • Þeir hrista hausinn.
  • Þeir gera snöggar höfuðhreyfingar til að reyna að losna undan taumsambandinu.
  • Þeir setja höfuðið upp úr eða undir bitann til að reyna að losna við þrýstinginn. 
  • Þeir stinga tungunni út úr sér eða bryðja mélið óstjórnlega. 

Sumir hestar kjósa fremur D mél en múffu mél eða mél með lausum hring þar sem D mélið gefur þéttari snertingu við munnvikin. 

D hringirnir koma í veg fyrir að mélið geti dregist inn í munninn. Þeir gefa knapanum einnig aukinn stuðning í beygjum.

Í samanburði við mél með lausum hring er eftirgjöfin aðeins hægari og minni þrýstingur á hnakka. 

Sumum knöpum finnast hestarnir þyngri og hægari á D hringjum. Þeir knapar gætu prufað mél með "vængjum", þeas múffumél með lausum hring. Vængirnir eru tilvaldir til að koma í veg fyrir að mélin geti klipið munnvikin eða dregist í gegn um munninn. 

Þetta eru punktar sem safnast hafa frá hestamönnum sem hafa hjálpað til við að þróa og prófa mélið:

  • Koparrúllan á bitanum virkar sérlega vel á hesta sem vilja leggjast á taumana og taka stjórnina af knapanum.
  • Þegar riðið er með taumsamband er meiri þrýstingur á tunguna en tannlausa bilið. Koparrúllan gefur hestinum sterkan þrýsting á tungu ef hann reynir að taka stjórnina af knapanum. Þegar hesturinn gefur eftir fer þrýstingurinn af tungunni. 
  • Hestar eru oft sáttari við mél úr sætmálmi (blátt málmblendi) en úr öðrum málmi. 
  • 105mm / 4¼" - 10mm
  • 115mm / 4½" - 12mm

Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.

Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstubraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5| 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogi 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana