Nýtt stórglæsilegt fjós í Þrándarholti

Lífland óskar ábúendum í Þrándarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi hjartanlega til hamingu með nýtt stórglæsilegt fjós. Þann 19. apríl síðastliðinn voru gangsettir þar tveir GEA 9500 mjaltaþjónar. Þjónarnir eru af fullkomnustu gerð með frumunema, COW Scout beiðslisgreini, tvöfaldri mjólkursíu, 300 lítra biðtanki og svo mætti lengi telja. Lífland seldi einnig eftirtalinn búnað í nýja fjósið:

  • 12.000 lítra sílótank frá Japy
  • GEA flórsköfuþjark með úðakerfi
  • Gegnumganganlegan kjarnfóðurbás frá Hanskamp
  • 15kW kanaldælu
  • Steinbita

Fjósið er einstaklega vel hannað og hugsað hefur verið um hvert einasta smáatriði. Fyrirhugað er að vera með opið fjós þann 16. júni og verður það auglýst sérstaklega þegar nær dregur.

Þrándarholt 2023
Bræðurnir Arnór og Ingvar Þrándarsynir, bændur í Þrándarholti

Þrándarholt 2023Þrándarholt 2023Þrándarholt 2023Þrándarholt 2023


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana