Nýr hestafóður og bætiefnabæklingur Líflands

Fóður og bætiefni 2020
Fóður og bætiefni 2020

Á síðustu árum hefur Lífland stóraukið úrval sitt á sviði hestafóðurs og bætiefna.
Þær lausnir sem bjóðast eru allt frá því að uppfylla almennar þarfir yfir í að nýtast vel þegar glímt er við sértæk vandamál á borð við óstyrkar taugar, orkuvandamál, magavandamál, hófavandamál og annað sem upp getur komið.

Kjarnfóðurblöndur Líflands, Kraftur og Máttur, eru notadrjúgir og hagkvæmir valkostir sem flestum hestamönnum
eru að góðu kunnir. 
Meðal nýjunga eru góðgerlabættar lausnir á borð við PAVO Ease & Excel múslífóðrið sem bætist í sístækkandi
PAVO úrval, Pink Mash rauðrófukögglar og Protexin vörur sem hafa hitt vel í mark og hafa komið að góðu gagni fyrir hross sem eru undir miklu þjálfunar og keppnisálagi.

Á sviði bætiefna hefur Lífland stóraukið úrval sitt af Blue Hors bætiefna- og umhirðuvörunum sívinsælu og þær eru
nú aðgengilegar í fleiri verslunum en áður.
Við hvetjum þig til þess að kynna þér úrval okkar og vonum að þessi bæklingur nýtist við val á því sem best hentar þegar fóðrun hestsins er annars vegar. Hver hesteigandi á að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í verslunum Líflands.

Hér má nálgast bæklinginn á stafrænu formi


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana