Lífland hefur starfrækt verslun á Akureyri frá árinu 2008 en Ellert Jón Gunnsteinsson sem er af flestum norðlendingum góðu kunnur hefur stjórnað versluninni síðan hún opnaði. Verslunin flytur nú frá Lónsbakka í húsnæði að Óseyri 1 sem áður hýsti Múrbúðina. Með þessu er stefnt að stórbættu aðgengi að vörum og auknu vöruvali fyrir bændur, hestamenn og gæludýraeigendur.
Opnun verslunarinnar í nýju húsnæði verður þann 5. Júní nk. kl. 12 og eru allir velkomnir. Glæsileg opnunartilboð verða í boði og heitt á könnunni fyrir gesti og gangandi.