Verslun Líflands á Akureyri hefur flutt sig um set og hefur nú flutt í stórt og glæsilegt húsnæði á Grímseyjargötu 2, á Oddeyrinni.
Lífland hefur starfrækt verslun á Akureyri frá árinu 2008 en Ellert Jón Gunnsteinsson sem er af flestum norðlendingum góðu kunnur hefur stjórnað versluninni síðan hún opnaði.
Sem fyrr býður verslunin upp á fjölbreytt úrval af búrekstrar- og landbúnaðarvöru svo sem áhöldum, hreinlætisvörum, fóðri og bætiefnum. Hjá Líflandi er einnig breitt úrval af girðingarefnum, meindýravörnum, gæludýravöru, útivistarfatnaði og allt til hestamennsku svo sem reiðfatnaður, skeifur, fóður, reiðtygi og undirburður.
Hlökkum til að taka á móti ykkur á nýjum stað.