Lífland lækkar kjarnfóðurverð um 3%

Kjarnfóður
Kjarnfóður

Þann 1. október næstkomandi lækkar kjarnfóðurverð hjá Líflandi um 3%. Lækkunin nú er tilkomin vegna hagstæðrar þróunar gengis ásamt lækkandi verði hráefna á heimsmarkaði.  Þann 1. september s.l. lækkaði kjarnfóðurverð hjá Líflandi um 2% og  er þetta því önnur lækkunin á rétt rúmu mánaðartímabili.

Segja má að nokkuð samfelld lækkunarhrina hafi staðið yfir frá því snemma árs 2013, að undanskilinni 4% hækkun í júlí s.l. Meðaltalslækkun á kjarnfóðri hefur á þessu tímabili verið rúm 25%, mismikil eftir tegundum. Lífland hefur verið leiðandi aðili í verðþróun kjarnfóðurs um árabil og eru þessar lækkanir liður í virkri vöktun félagsins á markaðsaðstæðum og í þeirri stefnu að viðskiptavinir njóti verðþróunar hráefna eins og kostur er.

 

Nánari upplýsingar fást hjá Jóhannesi B. Jónssyni, deildarstjóra landbúnaðarsviðs í s. 540-1140.


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana